Nýjar íbúðir við Vesturbugt

Tölvugerð mynd af nýjum byggingum sem eiga að rísa við Vesturbugtina vestan slippsvæðisins við Vesturhöfnina í Reykjavík. Samkvæmt teikningunni er ljóst að gert er ráð fyrir að gamla húsið fái að standa.

Alls verða 176 nýjar íbúðir byggðar í Vesturbugt við gömlu vesturhöfnina í Reykjavík á næstunni. Verður það gert á grundvelli vinningstillögu VSÓ Ráðgjafar ehf., BAB Capital ehf., PKdM Arkitekta ehf., Basalt arkitekta ehf., Trípólí arkitekta sf. og Krads arkitekta ehf. um íbúða- og athafnasvæði.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Grímur M. Jónasson, framkvæmdastjóri VSÓ og Bjarki A. Brynjarsson, framkvæmdastjóri Vesturbugtar skrifuðu undir samninginn. Framkvæmdir eiga að hefjast innan 15 mánaða frá undirskrift og skal þeim lokið innan fimm ára. Megin einkenni þessarar fyrirhuguðu byggðar er fjölbreytileiki í íbúðastærð og búsetu. Reykjavíkurborg mun kaupa 74 íbúðir og framselja til félaga sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða. Þar má nefna félög stúdenta, eldri borgara, Félagsbústaði, byggingafélög öryrkja og byggingarsamvinnufélög auk þess sem gert er ráð fyrir hluti íbúðanna verði leiguíbúðir.

Sannfærandi heildaryfirbragð

Vinningstillagan þykir sýna sannfærandi heildaryfirbragð sem og fjölbreytni í útfærslu byggðarinnar með því að hvert hús hefur sérkenni í efnisnotkun og hönnun að dómi. „Í tillögunni koma fram skapandi lausnir í mótun bygginganna og hugmyndir um bogadregin horn einstakra húsa með vísun í hafnarsvæðið er sann­færandi,” segir í greinargerð viðræðu- og matsnefndar Reykjavíkurborgar. Þá segir að torgsvæði séu vinaleg og hlýleg. Flæði inn á og um svæðið sé gott og opið á aðalleiðum og aðgengi að og frá bílakjallara um sérstök stigahús að sameiginlegum útisvæðum byggðarinnar séu áhugaverð. Gert er ráð fyrir bílakjallari geti verið fyrir allt að 190 bíla og verður hann opinn almenningi í rekstri hjá Bílastæðasjóði.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Grímur M. Jónasson, framkvæmdastjóri VSÓ og Bjarki A. Brynjarsson, framkvæmdastjóri Vesturbugtar skrifuðu undir samninginn.

Verslanir og veitingastaðir á jarðhæðum

Bjarki A. Brynjarsson framkvæmdastjóri Vesturbugtar segir það vera mjög ánægjulegt að koma að uppbyggingunni í Vesturbugt. „Við höfum fengið með okkur frábært teymi arkitekta sem hafa lagt mikinn metnað í að þróa hugmyndafræði svæðisins þannig að það verði aðdráttarafl fyrir íbúa og gesti. Í bland við afar fallega íbúðarbyggð verða veitingastaðir og verslanir á jarðhæðum sem opnast út á skjólsæl torg. Slippur-inn, hafnarsvæðið og Grandinn eru nú þegar orðin hringiða sérverslana og veitingastaða og maður þarf ekki að staldra lengi við til þess að sjá að nú þegar er iðandi mannlíf á svæðinu,“ segir Bjarki.

You may also like...