Flestir vilja lífga upp á skólalóð Mýró
Sjö verkefni voru valin í rafrænni íbúakosningu um “Nesið okkar” á Seltjarnarnesi. Starfsmenn Seltjarnarnesbæjar vinna að útfærslu þeirra og gert er ráð fyrir að unnt verði að hrinda þeim í framkvæmd í sumar. Um 12% bæjarbúa tóku þátt í kosningunni sem er í takti við það sem verið hefur undanfarin ár. Heildarfjármunir sem kosið var um nema 10 milljónum króna.
- Þau verkefni sem hlutu framgang í kosningunni voru að lífga upp á skólalóð Mýrarhússkóla með skemmtilegum möguleikum til leikja.
- Koma flokkunartunnum fyrir á fjölförnum stöðum á Seltjarnarnesi.
- Setja upp borð og stóla á Eiðistorgi.
- Vinna að endurbótum á leiksvæðunum við Hofgarða og Vallarbrautarróló.
- Koma upp hraðhleðslustöð fyrir rafdrifna bíla á Seltjarnarnesi og bæta útsýni frá heita pottinum að rennibrautinni við sundlaugina.
- Endurbætur á skólalóð Mýrarhúsaskóla og að setja upp flokkunartunnur eru þau verkefni sem flestir greiddu atkvæði.
- Önnur verkefni sem kosið var um en urðu ekki fyrir valinu að þessu sinni voru lenging og lagfæring á göngustíg með fram friðlýstu svæði á Valhúsahæð.
- Grillhús í Bakkagarði.
- Göngustígur frá Bakkavör upp á Valhúsahæð.
- Setja upp útiþrektæki við íþróttavöllinn.
- Koma upp strandblakvelli og tennisvelli.
- Endurnýja körfuboltavöll við Hofgarða.
- Koma upp hjólabraut og og hjólabrettasvæði og að útbúa lokaða sturtuklefa við sundlaug Seltjarnarness.