Læs í vor í Breiðholti
– hægt að margfalda lestrarhæfni –
Læs í vor er námsefni sem Guðríður Adda Ragnarsdóttir atferlisfræðingur og kennsluráðgjafi hefur þróað í starfi sínu til að kenna lestur og ritun með stýrðum fyrirmælum (Direct Instruction, DI) og hnitmiðaðri færniþjálfun (Precision Teaching, PT). Kennarar þurfa að ljúka námskeiðinu Læs í vor til að fá réttindi til að nota námsefnið.
Sýnt hefur verið fram á að þegar kennt er með hinni samsettu tækni stýrðra fyrirmæla (DI) og hnitmiðaðrar færniþjálfunar (PT), leiðir námsefnið LÆS Í VOR til þess að lestrarfærni margfaldast hjá þeim sem hefja það, óháð aldri nemendanna eða ástæðum ólæsisins. Verkefnið Læsi allra mál – LÆM á Þjónustumiðstöð Breiðholts fékk styrk frá Sprotasjóði og ákvað í framhaldi, í samstarfi við alla grunnskólana í hverfinu, að bjóða kennurum í Breiðholti upp á námskeiðið Læs í vor. Tveimur kennurum frá hverjum skóla var boðið á námskeiðið þeim að kostnaðarlausu til að læra þessa aðferð við kennslu lesturs og ritunar. Alls mættu þátttakendur þrjár helgar með fimm vikna millibili en unnu þess á milli með nemendur undir leiðsögn Guðríðar Öddu. Miklar framfarir urðu hjá þeim nemendum sem unnið var með á haustönninni. LÆM óskar kennurum til hamingju með frábæran árangur og hlakkar til að fylgjast með þeim nýta þessa kennsluaðferð fyrir þá nemendur sem þurfa sértæka aðstoð við lestrarnám.