Listafólk sest að á Seltjarnarnesi

Athygli hefur vakið að margt listafólk hefur sest að á Seltjarnarnesi. Löngum hefur listafólk sóst eftir að búa á Nesinu en á undanförnum árum hefur ásóknin orðið meiri.

Á meðal listamanna sem flutt hafa á Nesið má nefna Víking Heiðar Ólafsson píanóleikara og Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóra. Af öðrum tónlistarmönnum má nefna Friðrik Karlsson gítarleikara og Jón Jónsson söngvara með meiru. Þá hefur tónlistarmaðurinn Jóhann Helgason lengi búið á Seltjarnarnesi og Freyja Gunnlaugsdóttir klarínettuleikari hefur flust á sitt gamla heimili á Sæbóli á Seltjarnarnesi. Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir leikstjórar og leikarar hafa búið á Nesinu um tíma og einnig Elma Lísa Gunnarsdóttir og Reynir Lyngdal. Hin danskættaða Tina Dickow hefur flust á Nesið ásamt eiginmanni Helga Hrafni Jónssyni tónlistarmanni. Ari Eldjárn höfundur og uppistandari býr á Seltjarnarnesi og einnig Kristinn Hrafnsson myndhöggvari. Þá búa hönnuðirnir Elsa Nilsen og Sigga Heimis á Seltjarnarnesi og Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistamaður, Jóhann Jóhannsson leikari og Árni Heimir Ingólfsson bæjarlistarmaður Seltjarnarness 2020 ásamt rithöfundunum Arnaldri Indriðasyni, Irsu Sigurðardóttur og Sólveigu Pálsdóttur.

You may also like...