Endurbætur á Norðurstíg og Nýlendugötu

Gera á umhverfi á Norðurstíg og Nýlendugötu vinalegt.

Endurnýja á yfirborð Norðurstígs og bæta við grjótbeðum meðfram götunni, lagnir og raflagnir í götunni verða endurnýjaðar. Snjóbræðslulögn verður einnig lögð í götuna.

Skapa á vinalegt umhverfi, bæta lýsingu meðfram göngustígnum, auk þess verður vegglistaverkið á gafli Ægisgötu 7 sérstaklega upplýst, bætt verður við bekkjum og hjólabogum. Gróðurbeðum með áherslu á blá/grænar ofanvatnslausnir verður komið fyrir í götunni.  

Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Naustareitnum sem afmarkast af Tryggvagötu, Norðurstíg og Vesturgötu. Þar er búið að byggja ný hús bæði í nýjum og gömlum stíl og búa til nýtt torg fyrir framan Tryggvagötumegin sem kallast Naustatorg. Nú er hins vegar komið að því að endurgera Norðurstíg sem liggur á milli Vesturgötu og Tryggvagötu. Í leiðinni verður sá kafli Nýlendugötu sem liggur á milli Norðurstígs og Ægisgötu einnig endurgerður og gerður að vistgötu.

Endurgerðin felst í því að yfirborð gatna verður endurnýjuð, nýjar gangstéttir lagðar og allar lagnir veitufyrirtækja endurnýjaðar. Norðurstígur verður áfram einstefnugata til norðurs en keyra má hann frá Vesturgötu að Tryggvagötu.

Kostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður 80 milljónir króna. Borgarráð hefur samþykkt að verkið verði boðið út.

You may also like...