Fjórar hæðir við Vesturgötu 67

Við Vesturgötu 67.

Samþykkt hefur verið að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi milli Seljavegar og Ánanausta vegna lóðarinnar nr. 67 við Vesturgötu. 

Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit um 20 cm til suðurs að garði, að heimilt verði að byggja fjórar hæðir í stað 2,5 hæðir, svalir megi ná 1,7 metra út fyrir byggingarreit að garði, götuhlið hússins skal taka tillit til aðliggjandi húsa eins og kostur er, lyftuhús má ná 0,8 metra upp fyrir hámarkskvóta vegghæðar, lóð er stækkuð að framanverðu og þar heimilt að setja bílastæði fyrir hreyfihamlaða, sorpgerði og gróður, byggingarmagn eykst og fjöldi íbúða verður 6 ásamt sameiginlegum rýmum á jarðhæð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

You may also like...