Anna Lára og Pálmi Rafn kjörin

– Kjör á íþróttamanni og konu Seltjarnarness 2020 –

Kjör íþróttamanna Seltjarnarness fyrir árið 2020 í kvenna- og karlaflokki fór fram fimmtudaginn 28. janúar og voru kjörin þau Anna Lára Davíðsdóttir handknattleikskona og Pálmi Rafn Pálmason knattspyrnumaður.  

Kjör íþróttamanna Seltjarnarness í kvenna og karlaflokki fór fram fimmtudaginn 28. janúar. 

Kjörið fór nú fram í 28. skiptið en það var fyrst haldið 1993. Kjörið er í umsjón íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarness, sem vill með kjörinu vekja athygli á gildi íþrótta, öflugu íþróttastarfi á Seltjarnarnesi og verðlauna sérstaklega afreksíþróttamenn úr hópi bæjarbúa.

Fimm tilnefningar bárust nefndinni þetta árið. Jafnframt voru veitt verðlaun til landsliðsfólks, ungs og efnilegs íþróttafólks auk þess sem bikarmeistarar voru sérstaklega verðlaunaðir. Einnig voru veitt verðlaun fyrir félagsstörf.

Íþróttamenn Seltjarnarness 2020 eru Anna Lára Davíðsdóttir handknattleikskona og Pálmi Rafn Pálmason knattspyrnumaður.

Anna Lára Davíðsdóttir – handknattleikur

Anna Lára Davíðsdóttir er fædd árið 2000 og er uppalin Gróttu-kona. Hún hefur gegnt lykilhlutverki í meistaraflokki kvenna síðustu tvö ár þar sem þær hafa spilað í Grill 66 deildinni. Hún er gríðarlega öflugur leikmaður bæði varnar- og sóknarlega. Hún er nú fyrirliði liðsins og hefur sinnt því hlutverki af mikilli kostgæfni. 

Anna Lára er gríðarlega metnaðarfull íþróttakona, frábær fyrirmynd sem verður gaman að fylgjast með í framtíðinni.

Pálmi Rafn Pálmason – knattspyrna

Pálmi Rafn Pálmason er 36 ára gamall og hóf meistaraflokksferilinn með Völsungi aðeins fimmtán ára gamall. Hann gekk í raðir KA og lék þar í þrjú ár, þar af tvö ár í úrvalsdeildinni.  Árið 2006 – 2008 lék hann með Valsmönnum og varð Íslandsmeistari með þeim árið 2007.

Frá árinu 2008 til 2014 lá leiðin í atvinnumennsku í Noregi og lék með Stabæk og Lilleström eða samtals 166 leiki í Norsku úrvalsdeildinni.

Pálmi flutti heim 2015 og leikur nú sitt sjötta tímabil með sigursælu liði KR-inga og er einn af lykilleikmönnum liðsins.  Hann hefur leikið um 400 deildarleiki á ferlinum og skorað í þeim 100 mörk.  Pálmi er gríðarlega sterkur leiðtogi bæði innan vallar og utan.

Tilnefndir 2020.  Pálmi Rafn, Anna Lára og Ingi Þór. Á myndina vantar Hákon Rafn og Magnús Óla.
Efnilegt íþróttafólk sem stundar íþrótt sína á Seltjarnarnesi.
Landsliðsfólk sem stundar íþrótt sína á Seltjarnarnesi. Á myndina vantar Tinnu Brá.
Bikarmeistarar í 2.þrepi fimleikastigans.
Viðurkenningar fyrir félagsstörf – á myndinni er Edda Ágústa Björnsdóttir.

You may also like...