Þjónustumiðstöðin í Landsbankahúsinu við Álfabakka

Þjónustumiðstöð Breiðholts er á efri hæði í húsi Landsbankans við Álfabakka.

Þjónustumiðstöð Breiðholts er staðsett við Álfabakka 10 eða á efri hæð húss Landsbankans þar sem stofnunin fékk hentugan samastað. Í Þjónustumiðstöðinni er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar.

Hjá Þjónustumiðstöðinni er veitt velferðarþjónusta til íbúa í Breiðholti, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæsluráðgjöf, frístundaráðgjöf og ýmis fagleg þjónusta til stofnana aðila í hverfinu. Hægt er að panta tíma í ráðgjöf og eða fengið allar nánari upplýsingar um þjónustuna með því að hringja í þjónustumiðstöðina í s. 411 1300 eða senda tölvupóst. Markmiðið með þjónustumiðstöðvum borgarinnar er að gera þjónustu aðgengilegri fyrir íbúa og efla þverfaglegt samstarf sérfræðinga í málefnum barna og fjölskyldna og auka þannig lífsgæðin í höfuðborginni. Jafnframt leggja þjónustumiðstöðvarnar mikla áherslu á að styrkja hvers kyns hverfastarf í samvinnu við íbúa, félagasamtök og aðra þá sem vilja láta til sín taka.

Hverfisstjóri Breiðholts er Óskar Dýrmundur Ólafsson og gegnir hann jafnframt framkvæmdastjórastöðu Þjónustumiðstöðvar Breiðholts.

You may also like...