Framkvæmdir við skólpdælistöð við Norðurströnd

Stórvirk vinnuvél að störfum við fráveituna.

Eins og áður hefur verið kynnt standa yfir umfangsmiklar framkvæmdir og endurbætur á fráveitu Seltjarnarnesbæjar. Endurbæturnar í heild sinni hafa staðið yfir í nokkur ár og er gert ráð fyrir því að þeim muni ljúka um áramótin. 

Frá því í vor hefur verið unnið við lagningu nýrrar þrýstilagnar frá dælubrunninum meðfram Norðurströndinni og mun hún ná alla leið að dælustöð Veitna við Seilugranda. Þessa dagana er unnið að endurnýjun dælustöðvarinnar fyrir fráveitu við Norðurströnd og Lindarbraut en dælustöðin mun sjá um að skila skólpinu til hreinsistöðvanna við Ánanaust. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

You may also like...