Kolbrún vill aðra sundlaug í Breiðholtið

Góð aðstaða er í Breiðholtslaug en hún nær ekki að þjóna öllu hverfinu.

Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi hefur lagt til að byggð verði önnur sundlaug í Breiðholti og hefur nefnt íþróttasvæði ÍR sem dæmi um heppilega staðsetningu. Hún segir að nýtt hverfisskipulag fyrir öll hverfi Breiðholts hafi verið í umræðunni í vetur og verið kynnt Breiðhyltingum. Í Breiðholti sé aðeins ein sundlaug, Sundlaug Breiðholts. 

„Í hverfinu öllu búa 22 til 24 þúsund manns. Það segir sig sjálft að ein sundlaug dugar varla til að annast þjónustu við hverfisbúa. Áætlað er að byggja mikið í Breiðholti næstu misserin samanber nýtt hverfisskipulag. Um er að ræða allt að 2000 íbúðir þegar allt er tiltekið þar af nýjar íbúðir í Mjódd gætu orðið ca. 600 og aukaíbúðir í sérbýli mögulega um 500 til 700. Kolbrún segir að sjá megi hvernig nýtingatölur í Sundlaug Breiðholts hafa hækkað jafnt og þétt frá 2009. „World Class opnaði líkamsræktarstöð við hlið laugarinnar 2017 og fjölgað gestum laugarinnar þá umtalsvert. Árið 2009 var aðsókn 204.047 en árið 2019 432.219. Til samanburðar eru þrjár sundlaugar í Hafnarfirði en þar búa um 28 þúsund manns. Í Breiðholtslaug koma ekki einungis Breiðhyltingar heldur einnig fólk úr Norðlingaholti“

Kolbrún segir stöðuna þannig að erfitt ef ekki ógerlegt sé að fara í sund milli kl. 8.00 og 16.00 „Vissulega er skólasund í forgangi en það er ekki ásættanlegt að almenningur eigi þess ekki kost að fara í sund nema á kvöldin til að synda. Breiðhyltingar eru jafnvel farnir að aka í önnur sveitarfélög til þess að fara í sund. Því verður að skoða fyrir alvöru að bæta við annarri sundlaug í Breiðholtinu. Þetta er góð líkamsrækt og gott fyrir heilsuna. Ekki hafa allir efni á líkamsræktarkorti.“

You may also like...