Seltjarnarnesbær hlýtur Jafnvægisvog FKA

Ari Eyberg mannauðsstjóri tók við viðurkenningunni fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar.

Seltjarnarnesbær hefur hlotið viðurkenninguna Jafnvægisvog FKA. Um er að ræða hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) og kynnti Eliza Reid viðurkenningarnar á ráðstefnunni, Jafnrétti er ákvörðun, sem haldin var fyrir skömmu.

Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til þrjátíu og átta fyrirtækja, sjö sveitarfélaga og átta opinberra aðila úr hópi þeirra 152 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu og tóku þátt í könnun um aðgerðir sem gripið var til. 

Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem skrifuðu undir vilja-yfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar haustið 2020 hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim fyrirtækjum sem hafa náð markmiðunum um 8 á milli ára. Auk þess vekja þátttakendur í Jafnvægisvoginni athygli á jafnréttismálum innan sinna fyrirtækja með ýmsum öðrum hætti. Mikil ánægja er með þessa viðurkenningu innan Seltjarnarnesbæjar enda markvisst unnið að því að tryggja jafna stöðu kynjanna. Seltjarnarnesbær hlaut til að mynda Jafnlaunavottun í desember 2020.

You may also like...