Dansskóli Birnu Björns fagnar 25 ára starfsafmæli

Dansskóli Birnu Björns fagnar 25 ára starfsafmæli skólans um þessar mundir. Það er heldur betur búið að vera mikið að gera hjá þeim eftir covid. Haldin var loks hin árlega danskeppni og voru þau með stór glæsilegar nemendasýningar í Borgarleikhúsinu þar sem dansdeild og söngleikjadeild leiddu saman hesta sína og allir nemendur tóku þátt.

Nemendur og kennarar fóru til Spánar að keppa á Dance World Cup í sumar og náðum flottum árangri í öllum flokkum. Einnig fór nemendahópur í árlegu dansferð til London en þar sækja nemendur workshop og tíma hjá þekktum kennurum og danshöfundum og hópurinn kíkti  á söngleiki og skemmti sér vel saman. Núna í haust bjóða þau upp á spennandi markvisst dansnám. Kenndir verða nokkrir dansstílar t.d. jazzballett, lyrical jazz , commercial, freestyle tækni, söngtíma, framkomutíma, spuna og leiklist. Kennt er frá þriggja ára aldri. Sýningar og keppnishópar verða á sínum stað og er margt spennandi framundan í vetur sem verður tilkynnt síðar.

You may also like...