Þjálfarafundur hjá Gróttu

Ásdís Hjálmsdóttir fyrrverandi spjótkastari var með fyrirlestur.

Árlegur haustfundur fyrir þjálfara Gróttu var haldin miðvikudagskvöldið 12. október. Eftir að íþróttastjóri félagsins hafi verið yfir praktísk mál var komið að gestafyrirlesara kvöldsins. 

Það er hefð fyrir því að fá gest til að halda fyrirlestur fyrir þjálfaranna og að þessu sinni mætti Ásdís Hjálmsdóttir fyrrverandi spjótkastari og þrefaldur Ólympíufari. Hún hefur verið að sérhæfa sig í hugarfarsþjálfun og heldur úti sinni eigin heimasíðu https://asdishjalmsdottir.com/islenska

Fyrirlestur hennar var mjög áhugaverður þar sem hún byrjaði að ræða sína sögu þegar kemur að hugarþjálfun, hvenær og hvernig hún byrjaði að nota hugarfarsþjálfun og hvaða áhrif það hafði á hennar feril til þess að undirstrika mikilvægi hennar. Síðan fór hún nánar í 5 grunnaðferðir í hugarþjálfun til þess að þjálfararnir viti hvernig er hægt að gera þetta og geti kennt sínum iðkendum. Í lokin talaði hún svo um hlutverk þjálfarans í þessu öllu (þar sem það er nú einu sinni íþróttafólkið sjálft sem þarf að gera þetta) og hvernig þjálfarar geta tvinnað hugarþjálfun inn í æfingarnar. Mjög góð mæting var á fundinn.

You may also like...