Lýsingin hlaut heiðursviðurkenningu

Lýsingin hefur vakið mikla athygli.

Lýsing á nýlega endurnýjuðum torgum í Mjóddinni hlaut heiður­sviðurkenningu í flokknum landslagslýsing á alþjóðlegu LIT-lýsingarverðlaununum. Hönnunin ljósanna var í höndum Lisku í samstarfi við Landmótun.

Lýsingin hefur vakið töluverða athygli og glatt gesti og gangandi á þessum fallegu torgum í Mjóddinni sem hafa tekið algjörum stakkaskiptum. Áhersla er lögð á að auka yndi og ánægju vegfarenda með lit og lýsingu. Þarna er að finna spennandi ljósalistaverk í mörgum litum, litskrúðuga og öðruvísi hjólaboga, túlípanasæti og ljóslínur í hellulögn. Heildarhönnun svæðisins fær að njóta sín á öllum árstíðum og allan sólarhringinn.

You may also like...