Marinó hættir
Marinó Þorsteinsson hætti nýlega sem formaður sóknarnefndar Dómkirkjunnar eftir langan og farsælan feril í safnaðarstarfi og sóknarnefnd. Marinó var formaður endurbótarnefndar um aldamótin þegar gerðar voru gagngerar endurbætur á hinu forna kirkjuhúsi, einstaklega glöggur, ötull og samviskusamur.
Alla tíð hefur hann verið vakinn og sofinn yfir málefnum kirkjunnar og safnaðarins, og sinnt öllum málum hennar af fádæma fórnfýsi og dugnaði, og stutt við starfsfólk og sjálfboðaliða með ráðum og dáð. Við formennsku tekur Einar S. Gottskálksson. Um leið og Marinó eru þökkuð hans dýrmætu störf fyrir Dómkirkjuna fyrr og síðar óskum við Einari allra heilla. Safnaðarstarfið í Dómkirkjunni hefur farið vel af stað í haust með ánægjustundum bæði í kirkjunni og safnaðarheimilinu við Lækjargötu. Nú styttist í fæðingarhátíð frelsarans – verið hjartanlega velkomin í Dómkirkjuna.