Orkustöðin við Suðurfell römpuð upp
Orkustöðin við Suðurfelli í Breiðholti hefur verið römpuð upp. Var það gert í samstarfi Römpum upp Ísland og Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra. Orkustöðin í Suðurfelli er fyrsta bensínstöð landsins sem er aðgengileg fyrir hreyfihamlaða.
Ramparnir voru formlega teknir í notkun þegar Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalagsins, og Margrét Lilja Arnheiðardóttir formaður Sjálfsbjargar, mættu og fylltu á tankinn. Aðgengi hreyfihamlaðra er bætt með því að hækka stéttina í kringum þrjár bensíndælur og færa greiðsluvélarnar neðar. Bílastæðin hafa einnig verið breikkuð og allt aðgengi að og inn í verslunum verið rampað upp. Auk orkugjafa þá eru Lyfjaval og Sbarro með verslun og þjónustu í Suðurfelli Breiðholti og settir hafa verið sjálfvirkir hurðaopnar, aðgengilegt salerni og borð í réttri hæð.