Samningur um hönnun undirritaður

Kristján Garðarsson, arkitekt hjá Andrúm og Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri handsala hönnunarsamninginn. Með þeim á myndinni eru Margrét Gísladóttir, leikskólastjóri, starfsfólk Sólbrekku auk kátra leikskólabarna.

Seltjarnarnesbær hefur gengið frá samningi um fullnaðar­hönnun á nýjum leikskóla „Undra­brekku“ við Andrúm arkitekta. Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri og Kristján Garðars­son arkitekt undirrituðu samninginn á vett­vangi fyrirhugaðra framkvæmda að viðstöddum miklum fjölda leikskólabarna og starfsfólki. Spenna var í lofti og stundin afar táknræn enda brýn þörf fyrir stærri leikskóla á Seltjarnarnesi. Efnt var til verðlaunasamkeppni árið 2018.

Áform um að bæta húsakost leikskólans á Seltjarnarnesi hefur verið á döfinni um nokkurra ára skeið. Árið 2018 efndi Seltjarnarnesbær til verðlaunasamkeppni um hönnun á nýjum leikskóla þar sem Andrúm arkitektar hlutu fyrstu verðlaun. Þá voru til skoðunar stórtækar hugmyndir þar sem skipta átti út öllum fyrir­liggjandi leikskólabyggingum á svæðinu fyrir allt að 3.600 fm. nýbyggingu. Fallið hefur verið frá þeirri hugmynd.

Ný útfærsla sem tvöfaldar aðstöðuna

Undanfarið ár hefur verið unnið markvisst áfram með Andrúm arkitektum miðað við breyttar forsendur. Nokkrar minni útfærslur hafa verið til skoðunar og nú liggur fyrir ákvörðun um að byggja nýja 1.550 fm. byggingu á lóðinni Suðurströnd 1 en nýta áfram húsnæði Mánabrekku og Sólbrekku. Ráðist verður í endurbætur á húsnæði þeirra, skipulagið yfirfarið og aðbúnaður bættur samhliða byggingu á nýja húsnæðinu. Þá verður gerð tengibygging á milli hinnar nýju byggingar og Mánabrekku. 

Með fyrirhugaðri nýbyggingu mun vinnurými leikskólans tvöfaldast en nýja byggingin mun rúma um átta leikskóladeildir og allt 150 börn. Mánabrekka og Sólbrekka eru um 1.300 fm. og því bætast við 1.550 fm. við athafnasvæði leikskólans með þessari framkvæmd og öll starfsemin rúmast á einum stað. Með stækkuninni verður jafnframt mögulegt að veita börnum frá 12 mánaða aldri leikskólavist.

Fullnaðarhönnun og framkvæmdir framundan

Samningur við Andrúm arkitekta felur í sér fullnaðarhönnun á nýja leikskólanum. Endanlegar teikningar verða kynntar fyrir bæjarbúum þegar þær liggja fyrir. Að auki mun Andrúm annast alla hönnunarstjórn verkefnisins, þ.m.t. arkitekta- og verkfræðihönnun sem og umsjón með gerð allra verklýsinga vegna útboðs. Stefnt er að því að Ríkiskaup sjái um framkvæmd útboða vegna verklegra framkvæmda.

Lagt er upp með að kostnaður við fram­kvæmdina verði á bilinu 1.250 – 1.500 m.kr. en erfitt er að áætla nákvæmlega kostnað við framkvæmdir í umhverfi þar sem verðbólga nálgast 10%. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki seinni hluta árs 2025. 

You may also like...