Bergstaðastræti 4 fær að standa

Húsið við Bergstaðastræti 4 setur sterkan svip á götumyndina.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur hafnað ósk eiganda hússins Bergstaðastrætis 4 um að rífa húsið og byggja fjögurra hæða hús á lóðinni. Húsin á lóðinni Bergstaðastræti 4 voru byggð 1912 og teljast því aldursfriðuð samkvæmt lögum um menningarminjar. Upphaflega er þetta hús sagt steinsteypt einlyft verksmiðjuhús með mænisþaki, en er núna tvílyft með skúrþaki og hefur verið klætt að utan, að því er fram kemur í umsögn verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa.

Húsið Bergstaðastræti 4 stendur gegnt Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og skáhallt á móti Kaffibarnum. Norðan við er lítið rautt timburhús þar sem Bólstrun Ásgríms var lengi til húsa. Upphaflega mun eldsmiðja hafa verið starfrækt í húsinu en margvísleg starfsemi hefur verið þar í gegnum áratugina. Árni Höskuldsson gullsmiður rak gullsmíðaverkstæði í húsinu um árabil. Þar voru einnig tískuvöruverslunin Kastalinn og Wok Shop um tíma. Á seinni árum hefur veitingastarfsemi verið í húsinu. Má þar nefna Matarkistuna, sælkerabúð Sigurveigar og Súpu Reykjavík. Engin starfsemi er þar í dag. Bergstaðastræti 4 setur sterka götumynd á umhverfið. Þar parast gamla bólstrunarhúsið þar sem Egill Ásgrímsson starfaði þar til fyrir nokkrum árum og nágrannahúsið. Egill og Árni Gullsmiður voru ekki aðeins nágrannar við Bergstaðastræti heldur einnig félagar í völdum kaffihóp sem hittist í morgunkaffi á Kaffi Tári í Bankastrætinu nokkrum skrefum neðar.  

You may also like...