Leiknisfólk heiðrað

Heiðursmerkjafólk Leiknis.

KSÍ veitti myndarlegum hópi Leiknisfólks Gull- og Silfurmerki félagsins fyrir framúrskarandi störf í þágu knattspyrnuhreyfingarinnar á 50 ára afmælisdegi félagsins, þann 17. maí síðastliðinn. Tilnefningar til svona viðurkenninga koma frá félögunum sjálfum og í ljósi þess að Leiknir hefur ekki stundað þetta reglubundið var tækifærið nýtt til að heiðra góðan hóp í tilefni af stórafmælinu.

Haukur og Valur Gunnarssynir og Eyjólfur Tómasson hlutu Silfurmerki KSÍ fyrir afrek sín sem nokkrir leikjahæstu leikmenn meistaraflokks eftir að hafa farið upp allt yngriflokkastarf félagsins. Aðrir fimm voru heiðraðir með sama merki fyrir ötult starf í þágu félagsins eftir að hafa æft upp alla flokka og svo klæðst sjálfboðaliðavestum þegar skórnir fóru á hilluna. Þetta er fólk sem keyrir rúturnar, flaggar fánunum og gengur í allt sem er ómetanlegt fyrir félagið, ár eftir ár eftir ár. Allir með yfir 20 ár sem grjótharðir Leiknismenn í öllum hlutverkum sem hægt er að hugsa sér. Þetta eru þeir Davíð Jónsson, Guðjón Ingason, Garðar Ásgeirsson, Thorvald B. Sörensen og Birgir Ólafsson. Eru þeir svo sannarlega vel að heiðrinum komnir og frábær fyrirmynd fyrir annað Leiknisfólk til framtíðar. 

Tólf gullmerki

Tólf voru sæmdir gullmerkishafar KSÍ. eru skilgreindir sem aðeins þeir sem unnið hafa knattspyrnuíþróttinni langvarandi og þýðingarmikil störf. Það var tilfinningaþrungin en jafnframt gleðileg stund er þetta fólk var sæmt þessu merki í nafni félagsins. Þeir eru:

Alfreð Alfreðsson sem hefur starfað fyrir félagið í rúmlega 30 ár.

Arnar Einarsson sem er fyrrum formaður félagsins og var einn af þeim sem kom að því að bjarga félaginu frá gjaldþroti í kringum aldamótin.

Guðmundur Birgisson fyrrum formaður, gjaldkeri og stjórnarmaður félagsins. Fáir sem hafa verið jafn lengi í stjórn félagsins og hann.

Ellen Klara Eyjólfsdóttir var í stjórn félagsins og kom að því að bjarga því frá gjaldþroti. Ellen var stjórnarmaður  í 16 ár.

Björk Þorgeirsdóttir kom einnig að því að bjarga félaginu frá gjaldþroti og var hluti af unglingaráðinu 1995.

Magnús Eggertsson var einn af þeim mönnum sem kom að félaginu þegar það voru mjög fáir sem störfuðu þar. Gekk í öll störf og var meðal annars þjálfari hjá félaginu til margra ára. Það er mönnum eins og Magnúsi að þakka að félagið sé ennþá starfandi og lagðist ekki af í kringum 1985.

Ólafur Garðarsson er einn ötulasti sjálfboðaliði í sögu félagsins og er varla hægt að snerta þann flöt sem Ólafur hefur ekki komið að hjá félaginu. 

Gísli Friðrik Hauksson er einn ötulasti sjálfboðaliði í sögu félagsins. Varla er hægt að snerta þann flöt sem Gísli hefur ekki komið að hjá félaginu.

Bjarni Björnsson er einn ötulasti sjálfboðaliði í sögu félagsins og varla hægt að snerta þann flöt sem Bjarni hefur ekki komið að.

Guðný Sævinsdóttir hefur bæði verið aðalstjórn og unglingaráði. Hún hefur eining séð um alls konar uppákomur hjá félaginu. Hún er sú duglegasta að reyna að rífa upp kvennaknattspyrnuna hjá félaginu.

Þórir Þórisson hefur verið í stjórn félagsins sem og unglingaráðum og hefur starfað fyrir félagið í rúm 30 ár sem sjálfboðaliði.

Oscar Clausen er núverandi formaður félagsins en hefur unnið ýmis störf í þágu þess í yfir 20 ár og sem formaður núverandi stjórnar var hann ekki tilnefndur af félaginu sjálfu en stjórn KSÍ þurfti ekki mörgum blöðum um það að fletta hvort hann væri þess verðugur að bætast í þennan glæsilega hóp eldhuga sem brenna fyrir Íþróttafélagið Leikni. 

You may also like...