Sameiginleg sumarnámskeið
![](https://borgarblod.is/wp-content/uploads/2020/09/Smidavollur-2.jpg)
Á vordögum var ákveðið að samtvinna sumarnámskeið Seltjarnarnesbæjar og Gróttu í sumar og gekk samstarfið vonum framar.
Þátttakendur á námskeiðunum sækja gjarnan blöndu af námskeiðum Gróttu og Seltjarnarnesbæjar, með sameiginlegri verkefnastjórn styttust því boðleiðir og upplýsingaflæði jókst til muna. Verkefnastjórn námskeiðanna í sumar var í höndum Jónu Ránar Pétursdóttur, sem er einnig nýr forstöðumaður Selsins, og Laufeyjar Helenu Gísladóttur, sem er einnig nýr verkefnastjóri handknattleiksdeildar Gróttu.