Við gerum þetta saman
Það verður erfiður rekstur hjá öllum bæjarfélögum og ríkinu í ár og á næstu misserum í kjölfar COVID-19. Enn hefur ekki tekist að vinna bug á þessum faraldri. Seltjarnarnes hefur orðið fyrir samdrætti í útsvarstekjum eins og önnur bæjarfélög á þessu ári. Á sama tíma leggur meirihlutinn áherslu á að halda úti öflugri þjónustu. Við Seltirningar tökumst samhent á við farsóttina og náum þannig árangri. Á þessum tímum skiptir máli að styðja vel við bakið á starfsfólki bæjarins og íbúum.
Sumarfólkið og vinnuskólinn stóðu vaktina í sumar
Nú er komið að því að sumarstarfsmenn okkar eru að kveðja. Til að halda uppi góðri þjónustu hjá bænum höfum við ráðið afleysingafólk til að létta undir. Sumarfólkið, líkt og þeir fastráðnu, hefur staðið sig frábærlega í sumar og komið að margvíslegum verkefnum. Ber að þakka þeim vel unnin störf. Einnig hafa átaksverkefni verið í gangi hjá stjórnsýslunni sem gengið hafa mjög vel og unga fólkið sinnt af dugnaði.
Sterkir innviðir, lágar álögur
Við höfum styrkt mikilvæga innviði í bæjarfélaginu. Skólamál hafa alltaf verið forgangsmál og álögur eru meðal þeirra lægstu á landinu. Seltjarnarnesbær leggur áherslu á að Nesið sé ávallt leiðandi í skóla-, æskulýðs- og íþróttastarfi á landsvísu, þar sem lögð er áhersla á jöfn tækifæri, árangur og vellíðan. Við getum verið sátt með árangur undanfarinna ára. Kannanir sýna að á landsvísu eru Seltirningar hvað ánægðastir með bæjarfélagið sitt.
Útgjöld bæjarins hafa verið að hækka umfram hækkun tekna, það eru afleiðingar yfirfærslu málefna frá ríki til sveitarfélaga en einnig aukinnar þjónustu. Engu að síður er fjárhagsstaða bæjarins sterk, bæjarfélagið skuldar lítið. Við stöndum á traustum grunni. Það sem skiptir máli er að verja grunnþjónustuna og sníða sér stakk eftir vexti. Við hér á Nesinu ætlum að verja þá góðu stöðu sem bæjarfélagið hefur byggt upp. Fyrsta skrefið er að leggja fram á næstunni fjárhagsáætlun fyrir árið 2022, sem tekur mið af þeirri staðreynd að við erum enn að vinna úr margvíslegum afleiðingum farsóttar.
Fjárfestingar og framkvæmdir á árinu
Á þessu ári eru fyrirséðar nokkrar stærri framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins, auk hefðbundinna verkefna sem finna má stað í rekstri bæjarins, skv. fjárhagsáætlun.
Eitt umfangsmesta verkefni ársins er endurborun á hitaveituholu fjögur. Hún er nú að fara af stað og mun standa yfir næstu tvo mánuði. Einnig var farið í miklar viðhaldsframkvæmdir á stjórnstöð hitaveitunnar við Lindarbraut og áfram unnið að viðhaldi á öðrum virkum borholum.
Göngustígar við Eiðistorg og flutningur á gönguljósum þar er nú lokið. Á næstu vikum verður farið í að endurnýja umferðarljósin á gatnamótum Nesvegar og Suðurstrandar. Vegagerðin kemur að því verkefni með bænum. Göngustígurinn frá Snoppu að golfvelli verður endurnýjaður og hefst sú vinna í september.
Ný leiktæki hafa verið sett upp á leiksvæði leikskólans sem og viðhaldi sinnt á almenningssvæðum bæjarins. Endurnýjun á fráveitu við Norðurströndina gengur vel en verkinu verður ekki lokið fyrr en um áramótin. Nú er verið að leggja lokahönd á útboðsgögn varðandi sambýlið við Kirkjubraut 20 og fer framkvæmdin í auglýsingu fljótlega.
Lægstu fasteignagjöldin, hæstu tómstundastyrkirnir
Undir stjórn sjálfstæðis-manna hefur Seltjarnarnes boðið íbúum sínum upp á lægstu útsvarsprósentu sem þekkist í landinu, 13,66%, lægstu fasteignagjöldin og hæstu tómstundastyrkina kr. 50.000. Þá tryggir bærinn sumarstörf fyrir unga fólkið okkar, eins og áður er getið. Fjárhagur bæjarins beri vitni um ráðdeild og ánægja íbúanna endurspeglar þjónustu bæjarfélagsins.
Nú er kjörtímabilið rúmlega hálfnað og er engan bilbug að finna á okkur. Við munum áfram sem hingað til takast á við verkefnin af festu og varkárni. Við höfum byggt hjúkrunarheimili, stækkað íþróttamiðstöðina, byggt fimleikahús og stækkað stúkuna við gervigrasvöllinn svo eitthvað sé nefnt fyrir utan hefðbundið viðhald. Allt kostar þetta peninga en þeim fjármunum er vel varið. Bærinn hefur aldrei verið fallegri og snyrtilegri en nú í sumar.
Farsóttinni léttir um síðir. Við getum þá horft um öxl og talið okkur til tekna að hafa tekist á við erfiðleikana samhent. Það er samstaðan sem skilar árangri.
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri.