Samkeppni um breytingar á Melaskóla og Hagatorgi
Borgarráð hefur samþykkt að haldin verði hönnunarsamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um viðbyggingu við Melaskóla og einnig um hvernig útfæra megi Hagatorg sem fjölbreytt útivistarsvæði fyrir nemendur og íbúa í hverfinu. Skúli Helgason formaður Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar segir að Melaskóli sem fagnar 75 ára afmæli í ár sé einn fjölmennasti barnaskóli landsins með 579 nemendur á aldrinum 6 til 12 ára. Það er mun meiri fjöldi en skólinn rúmar og í þarfagreiningu um viðbyggingarþörf Melaskóla sem vísað er til í samþykkt borgarráðs segir að það komi m.a. niður á aðstöðu til list- og verkgreinakennslu, starfsmannaaðstöðu, mötuneytisaðstaða er af skornum skammti og aðgengismálum er ábótavant. Þarfagreiningin sýnir að brýnt er að byggja við skólann, bæði til að bæta fyrrnefnda aðstöðu, til að frístundaheimilið Selið fái aðstöðu í skólahúsnæðinu og til að rúma áætlaðan fjölda nemenda. Stefnt er að því að hönnunarsamkeppnin hefjist á fyrri hluta næsta árs og er vonast til þess að niðurstöður hennar liggi fyrir um haustið.
Í greinargerð um samkeppnina segir að endurbygging og hönnun Melaskóla sé margþætt verkefni þar sem hagsmunir barnanna eiga að hafa forgang og mikilvægt sé að huga að útisvæði í breytingunum. Mikilvægt er að samráð sé haft við notendur í hönnunarferlinu. Hluti af hönnunarsamkeppninni verður útfærsla á Hagatorgi sem rými fyrir almenning og skólastarf. Skúli segir að það sé mjög ánægjulegt að góð samstaða hafi skapast um að breyta Hagatorgi úr einhverri stærstu umferðareyju landsins í grænan almenningsgarð sem geti nýst fyrir fjölbreytta hreyfingu og skemmtilegt mannlíf barna og fullorðinna í hjarta Vesturbæjarins, jafnt nemenda sem annarra íbúa. Hagatorg er um 5600 fermetrar að stærð og býður því upp á mikla möguleika á fjölbreyttri nýtingu. Hugsa eigi Hagatorg sem fjölnota rými sem taki mið af nálægð þess við Mela- og Hagaskóla og leikskólann Hagaborg þannig að það geti nýst börnum og unglingum í skólunum þremur til fjölbreyttrar útivistar og útináms. Skoða þurfi samgöngur í nálægð skólans með áherslu á öryggi gangandi vegfarenda. Þess má geta að endurbætur á Hagatorgi hlutu kosningu í Hverfið mitt og verði útfærsla þeirra sérstaklega skoðuð fyrir fyrirhugaða samkeppni til að fjármunir nýtist svæðinu sem best.
Selið gegnir mikilvægu hlutverki
Skúli víkur tali sínu að frístundaheimilinu Selinu þar sem áhersla sé lögð á að bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni sem styðja við innleiðingu menntastefnunnar í verki. Skúli segir Selið gegna afar mikilvægu hlutverki í félagsmótun barna og leggi grunn að því að efla sjálfsmynd og félagsfærni þeirra. Mikill meirihluti nemenda í fyrsta og öðrum bekk í Melaskóla nýtir sér þjónustu frístundaheimilisins allt árið um kring. Húsnæði Melaskóla og Selsins þurfi því að vera sveigjanlegt og fjölbreytt til að geta mætt þörfum nútíðar og framtíðar. Það sé lykilatriði í stefnu skóla- og frístundasviðs að samþætta skóla- og frístundastarf undir sama þaki og það hafi verið leiðarljós starfshópsins sem skilaði fyrrnefndri þarfagreiningu. Það sé því stefnt að því að starfsemi frístundaheimilis og félagsmiðstöðvar Melaskóla fái aðstöðu inn í skólahúsnæðinu sjálfu eftir að það hefur verið stækkað.
Einnig þörf á stækkun Hagaskóla
Skúli bendir á að jafnframt sé nú unnið að greiningum varðandi úrbætur á húsnæðismálum Hagaskóla en þar er sömuleiðis þörf á stækkun, ekki síst til að mæta miklum og vaxandi nemendafjölda en líka til að mæta betur nútímakröfum um húsnæði sem hæfir nútímalegu skóla- og frístundastarfi. Vonir standa til þess að vinnu við þarfagreiningu á húsnæði Hagaskóla ljúki fljótlega.
Við undirbúning, hönnun, byggingu og rekstur bygginga Reykjavíkurborgar er áhersla lögð á umhverfissjónarmið. Skúli bendir á að fyrir liggi samþykkt frá borgarráði um að umhverfisvottunarkerfið Breeam skuli notað til að votta nýjar byggingar Reykjavíkurborgar. Við endurbætur á eldra húsnæðis séu ekki kröfur um vottun en engu að síður skuli hún unnin á sem vistvænastan máta. Mikilvægt sé því að unnið sé á markvissan hátt með umhverfissjónarmið í hönnunarferlinu. Þá leggur Skúli sérstaka áherslu á að mikill fengur sé að nýrri stefnu Reykjavíkurborgar um byggingar fyrir skóla- og frístundastarf þar sem m.a. er á vandaðan hátt sýnt fram á hvernig húsnæði og aðstaða geti nýst við að laða fram og styrkja hina fimm hæfniþætti sem mynda kjarna nýrrar menntastefnu borgarinnar byggist á: félagsfærni, sjálfseflingu, læsi, sköpun og heilbrigði. Þessi stefna verði leiðarljós byggingu nýrra skóla í framtíðinni en sömuleiðis viðbygginga eins og í Melaskóla og Hagaskóla.