Nýr ÍR frjálsíþróttavöllur opnaður
– fjölbreytt aðstaða á ÍR svæðinu –
Nýr frjálsíþróttavöllur ÍR var opnaður 10. maí. Vormót ÍR sem jafnframt var vígslumót vallarins var haldið 29. maí. Nýi völlurinn er bylting fyrir ÍR-inga og Breiðholtsbúa og einnig alla frjálsíþróttahreyfingu landsins.
Völlurinn mun nýtast vel til að efla íþróttina enn frekar. Frjálsíþróttavöllurinn er frábær viðbót við mikið uppbyggingarstarf sem hefur átt sér stað á ÍR-svæðinu en þar má nú finna grasvöll, gervigrasvöll, fjölnotahús með gervigrasi og frjálsíþróttaæfingaraðstöðu auk þess sem í félagsheimilinu er æfingaaðstaða fyrir júdó og taekwondo. Í sumar verður opnað nýtt parkethús sem mun nýtast bæði handbolta- og körfuboltaiðkendum á öllum aldri. Þá er unnið að undirbúningi sérstaka keiluhúss í tengslum við nýja parkethúsið.