Magni II að komast í upprunalegt ástand
– nýr Magni kominn til hafnar –
Ný vél hefur verið sett um borð í gamla dráttarbátinn Magna II. Hollvinasamtök Magna hafa unnið að því frá árinu 2017 að koma bátnum í sama ástand og hann var í þegar Stálsmiðjan í Reykjavík lauk við smíði hans 1954. Vélin sem sett var í bátinn er af árgerð 1968 og var í fullum rekstri þar til fyrir þremur árum. Hún kostaði 400 þúsund danskar krónur eða jafnvirði 7,5 milljóna íslenskra króna. Báturinn Magni var fyrsta stálskipið sem smíðað var hér á landi. Það var smíðað eftir teikningum Hjálmars R. Bárðarsonar skipaverkfræðings og fyrrum skipaskoðunarstjóra.
Saga dráttarbáta Reykjavíkurhafnar nær langt aftur. Í riti Guðjóns Friðrikssonar um 100 ára sögu hafnarinnar kemur fram að mönnum varð ljóst á fyrstu árunum eftir að hún var fullgerð árið 1917 að brýn nauðsyn væri að kaupa kraftmikinn dráttarbát. Aflað var tilboða í nýsmíði en kostnaðurinn var talinn of mikill. Um áratugur leið þar til fyrsti dráttarbáturinn kom til Reykjavíkur og fékk nafnið Magni. Síðan þá hefur verið hefð hjá höfninni að nefna öflugasta dráttarbátinn því nafni. Nokkrir dráttarbátar hafa því borið þetta nafn. Nú er nýr Magni kominn í flotann. Hann var smíðaður í Víetnam og er langöflugasti dráttarbátur sem Reykjavíkurhöfn/Faxaflóahafnir hafa eignast. Stærri skip hafa kallað á að öflugri dráttarbátar verði til taks. Nýr Magni lagði af stað frá Víetnam til Íslands hinn 19. október sl. og sigldi til Rotterdam. Hann lagði af stað til Íslands strax eftir áramótin og kom til í Reykjavíkur um miðjan janúar. Báturinn hafði þá lagt að baki rúmlega 10.000 sjómílna siglingu. Hinn nýi dráttarbátur er 32 metra langur og 12 metra breiður. Hann er með tvær 2.025 kW aðalvélar sem samanlagt gefa 6.772 hestöfl. Togkraftur verður 85 tonn fram og 84 aftur. Er það helmingi meiri togkraftur en núverandi Magni hefur og sá sami og samanlagður kraftur allra fjögurra núverandi báta Faxaflóahafna. Ákveðið hefur verið að núverandi Magni fái nafnið Haki. Fyrsti Magni var keyptur í Hamborg. Hann var átta ára og kom til Reykjavíkur árið 1928. Hann var knúinn 325 hestafla gufuvél. Magni 1 var í notkun fram á sumarið 1955 en var þá gerður að flotbryggju fyrir hafnsögubátana.