Fornminjar á Móakotstúninu
Uppgröftur á fornminjum í túni Móakots er hafinn. Minjar fundust þar við gröft könnunarskurða fyrir skömmu þar sem fyrirhugað hjúkrunarheimili á Seltjarnarnesi á að rísa.
Minjar fundist á þremur svæðum á túninu sem nauðsynlegt er samkvæmt lögum að rannsaka til hlítar áður en byggingaframkvæmdir geta hafist. Minjastofnun barst greinargerð frá Fornleifastofnun 11. júní sl. þar sem helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri segir að alls hafi 31 skurður verið grafinn í túninu og dreifst nokkuð jafnt yfir það. Engin merki um fornleifar hafi fundust í 12 skurðum, óveruleg merki fundust í fimm skurðum en miklar mannvistarleifar hafi fundist í 15 skurðum. Mat Minjastofnunar er að ráðast þurfi í frekari fornleifarannsóknir á þremur svæðum í túninu og er það byggt á þessum niðurstöðum. „Minjastofnun telur nauðsynlegt að rannsaka þessar minjar til hlítar, í þeim tilgangi að fá sem skýrasta mynd af gerð mannvirkja, umfangi, aldri og hlutverki og ber að beita til þess viðurkenndum, fornleifafræðilegum aðferðum.“ Ásgerður bendir á að Minjastofnun leggi til að byrjað verði að afhjúpa svæðin, að fjarlægja torf og yfirborðsjarðveg, en það ráðist svo af umfangi þeirra mannvirkja og annarra mannvistarlaga, sem þarna er að finna, hver endanleg stærð rannsóknarsvæðanna verður. „Þá fyrst er hægt að áætla kostnað við rannsóknirnar“, segir hún og bendir á að heimatún á Íslandi hafi víða haldist óbreytt frá örófi alda og mörg hver hafi að geyma fjölda minja af ýmsu tagi, eins og útihús, gömul bæjarstæði og jafnvel bænhús, sem ekki eru sýnilegar á yfirborði. „Líklegt þykir að eins sé ástatt um heimatún Móakots“ segir hún,“ en Móakot er hluti af túni Ness við Seltjörn þar sem búseta hófst á landnámsöld.