Þúsundir íbúða og hótel í nágrenni flugvallarins

Umferðarmiðstöðin. Hugmyndir eru um að byggja 200 herbergja hótel á þessu svæði.

Til íhugunar er að heim­ila fleiri byggingar í fyr­ir­huguðu hverfi við Reykja­vík­ur­flug­völl en áður var miðað við. Þegar hef­ur verið tekin ákvörðun um að fjölga íbúðum á Hlíðar­enda­svæðinu úr 600 í 780.

Skammt frá stend­ur til að byggja nýtt hverfi í Skerja­byggð. Þar er gert ráð fyrir að á bilinu 800 til 1.000 íbúðir muni rísa. Verði þeim fjölgað um 30%, eins og gert er ráð fyrir við Hlíðar­enda gætu þær orðið um 1.300 á næstu árum. Við þetta má bæta að Há­skól­inn í Reykja­vík er að byggja 500 til 700 manna stúd­enta­hverfi aust­ar í Vatns­mýri. Vest­an flugvallarins stend­ur til að byggja 230 stúd­enta­búðir í Vís­inda­görðum. Á vegum Reykjavíkurborgar er unnið að undirbúning sölu á svo­nefnd­um G-reit vest­ast á Hlíðar­endareit­um. Norðan Hringbrautar er síðan áformað að leyfa byggingu 200 her­bergja hót­els á BSÍ-reitn­um.

You may also like...