Verðlaunuð hús í Vesturbæ og Miðborg – Fríkirkjuvegur 3 og Nýlendugata 24

Tvö eldri hús í Vesturbæ og Miðborg Reykjavíkur hlutu viðurkenningar fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum í Reykjavík árið 2018. Það eru húsin við Fríkirkjuveg 3 og Nýlendugötu 24.

Húsið við Fríkirkjuveg 3 var byggt árið 1905 sem íbúðarhús í hinum íslenska bárujárnssveitserstíl. Höfundur hússins er ókunnur en Sigurður Thoroddsen verkfræðingur reisti húsið fyrir sig og fjölskyldu sína. Breytingar og endurbætur á húsinu hafa verið gerðar í samræmi við gerð og aldur þess eftir teikningum Stefáns Arnar Stefánssonar og Grétars Markússonar, arkitekta hjá ARGOS ehf.

Nýlendugata 24 er íbúðarhús, byggt árið 1906 í stíl sem kallaður hefur verið íslenskur bárujárnssveitser. Höfundur hússins er ókunnur en fyrsti eigandi var Jóhannes Guðmundsson skipstjóri. Húsið er hluti af þeirri byggð sem reis norðan Vesturgötu í kringum aldamótin 1900. Engar upprunalegar teikningar fundust af húsinu en samkvæmt lýsingu í brunavirðingum og af ljósmyndum sem teknar voru af því fyrir 1926 má sjá að það hefur haldið upphaflegri gerð og verið varðveitt af kostgæfni með tilliti til upprunalegs útlits.

Húsið við Fríkirkjuveg 3 var byggt árið 1905.

Eitt af húsunum sem byggð voru ofan gömlu hafnarinnar en neðan Vesturgötu á fyrstu árum liðinnar aldar.

You may also like...