Áfram unnið við torgin í Mjóddinni

– gróður og lýsing mun einkenna þann hluta sem vinna á við í sumar –

Torgið á milli Sambíóanna og Landsbankans verður endurgert í sumar.

Haldið verður áfram að fegra útivistar- og torgsvæðin í Mjódd í sumar. Torgið sem unnið verður við í sumar er á milli Sambíóanna, Landsbankans og Þangbakka 10. um er að ræða annan áfanga af þremur á þessum torgsvæðum í Mjóddinni.  

Torgið mun taka miklum breytingum. Þar verða settir upp bekkir til að setjast niður í sólinni. Áhersla verður lögð á aukinn gróður og grassvæði. Skemmtileg lýsing verður sett upp sem bæði eykur á öryggi fólks og lífgar upp á svæðið. Hjólabogar verða settir upp til að mæta þörfum hjólandi vegfarenda. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er 50 milljónir króna. Hönnunarvinna við þriðja áfanga stendur nú yfir. Fyrsti áfangi, torgið fyrir framan Breiðholtskirkju, á milli kirkjunnar og Þangbakka 8 til 10 er að verða tilbúið.

You may also like...