Stungið fyrir stækkun Vesturbæjarskóla

Vesturbæjarskoli skofla 1

Vesturbæjarskóli verður stækkaður á næstunni. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Margrét Einarsdóttir skólastjóri og börn í Vesturbæjarskóla tóku á dögunum fyrstu skóflustungurnar að viðbyggingu við skólann sem tekin verður í notkun haustið 2017.

Með nýrri byggingu við skólann er verið að mæta þörf vegna aukins nemendafjölda. Undirbúningur hefur staðið yfir undafarnar vikur og þurft hefur að færa lausar kennslustofur sem standa á lóð skólans vegna framkvæmdanna. Nýja viðbyggingin verður 1.340 fermetrar og mun hún hýsa hátíðarsal, eldhús fyrir nemendur, sérkennslustofur og almennar kennslustofur. Á fyrstu hæð verður hátíðarsalur með aðstöðu fyrir skólahljómsveit og kennslustofur fyrir tónmennt. Salurinn tengist mötuneyti og verður einnig nýttur sem matsalur. Á annarri hæð verða fjórar almennar kennslustofur og myndmenntastofa. Á þriðju hæðinni kemur náttúrufræðistofa og útisvæði með gróðurreitum þar sem hægt verður að rækta grænmeti. Auk viðbyggingarinnar verða einnig gerðar breytingar á eldra húsnæði skólans, en bókasafn og tölvuver verða endurbætt. Þá verður frístundaheimili við Vesturvallagötu endurgert með tilliti til eldvarna og flóttaleiða. Áætlað er að taka viðbygginguna í notkun haustið 2017.

Rask og götulokanir

Eins og búast má við verður talsvert rask vegna framkvæmda og þarf að loka hluta gatna. Til að bæta aðstöðu barna og stækka leiksvæði þeirra verður Vesturvallagata lokuð tímabundið milli Hringbrautar og Ásvallagötu. Til að bæta aðkomu að framkvæmdasvæði verður Framnesvegi breytt tímabundið í einstefnugötu til norðurs milli Hringbrautar og Sólvallagötu. Áætlað er að jarðvegsframkvæmdum ljúki í október og að tekið verði til við uppsteypu á næsta ári. Áætlaður heildarkostnaður vegna framkvæmda við viðbygginguna er 720 milljónir.

You may also like...