Lestrarátakinu verður fylgt eftir á Seltjarnarnesi
Læsi og lestrarkennsla eru helsta umræðuefni á vettvangi skólamála þetta haustið. Við skólabyrjun undirrituðu Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, og Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Þjóðarsáttmála um læsi við hátíðlega athöfn í Valhúsaskóla og þann 8. september var haldið var upp á alþjóðlegan dag læsis. Nesfréttir áttu spjall við Baldur Pálsson fræðslustjóra á Seltjarnarnesi á dögunum.
Fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar kvaðst Baldur fagna frumkvæði ráðherra að því átaki sem hér er ráðist í á landsvísu, því betur megi ef duga skal. „Við munum taka fullan þátt í verkefninu og strax nú á haustdögum hefst hjá okkur verkefnið Læsi er lykilatriði. Stjórnendur Grunnskóla Seltjarnarness, Leikskóla Seltjarnarness, Skólaskrifstofu Seltjarnarnesbæjar og Bókasafns Seltjarnarness hafa fyrir hönd viðkomandi stofnana sammælst um þetta samstarfsverkefni og með því verður meðal annars unnið að þeim markmiðum sem sett eru í Þjóðarsáttmála um læsi.“
Læsi er lykilatriði
Baldur segir að verkefninu sé fyrst og fremst ætlað að efla lestrargetu barna og ungmenna og bæta árangur nemenda í læsi. „Það gengur m.a. út á að auka samfellu í lestrarnámi í leik- og grunnskóla og efla samstarf um lestrarnám á milli skólastiga. Unnið verður að því að efla faglega þekkingu kennara og starfsfólks í leik- og grunnskóla á lestrarfræðum og raunprófuðum aðferðum í lestrarkennslu. Unnin verður heildstæð áætlun um skimanir á leik- og grunnskólastigi, sem hafa forspárgildi fyrir lestrarvanda hjá skólabörnum frá 1. og upp í 10. bekk, og hvernig brugðist verður við niðurstöðum þeirra.“
Heildstæð lestrar- og læsisstefna
Ætlaður afrakstur verkefnisins er heildstæð lestrar- og læsisstefna fyrir Seltjarnarnesbæ, segir Baldur, sem tekur til aðkomu framangreindra aðila, auk áætlunar um hvernig fá megi foreldra leik- og grunnskólabarna til aukinnar samvinnu um lestrarnám þeirra. „Veigamikill hluti verkefnisins er að efla meðvitund foreldra um mikilvægi ákveðinna vinnubragða til að efla lestrarfærni barna. Í stefnunni verður lögð áhersla á að auka samstarf skólastofnana við Bókasafn Seltjarnarness og efla þannig virkan stuðning safnsins við lestrarnám barna á Seltjarnarnesi. Aðkoma Skjólaskjóls verður sérstaklega skilgreind, hvað varðar læsi, og lögð verður áhersla á að nýta tækifæri sem felast í góðri samvinnu grunnskólans og Skjólsins.
Byggt á góðum grunni
Á haustdögum 2014 var rætt við alla kennara grunnskólans á árgangafundum um lestur og læsi, árangur skólans á þessu sviði og mikilvægi úrbóta. Baldur segir mikilvægt að styrkja kennara einnig í notkun fleiri kennsluaðferða til að tryggja fjölbreytta nálgun í kennslunni. „Mælingar á lestrargetu og lesskilningi sýna að of margir nemendur eiga enn í lestrarvanda á mið- og unglingastigi. Því er mikilvægt að fara yfir lestrar- og læsismálin í heild sinni allt frá því að börn hefja leikskólagöngu og þvert á námsgreinar í grunnskólanum með hag nemenda að leiðarljósi og gera hagnýta áætlun sem sést í framkvæmd innan leik- og grunnskóla.
Hlutverk foreldra – 365 dagar
Starfstími leik- og grunnskóla er takmarkaður á ári hverju og aðkoma foreldra og forráðamanna að lestrar- og læsisnámi barna er því afar mikilvæg allt árið um kring. Baldur segir að markviss fræðsla til foreldra um þróun málþroska, hljóðkerfisvitund, grunnþætti lesturs, lestur, lesskilning, málörvun og þjálfun hljóðkerfisvitundar sé hugsuð sem hluti af verkefninu. „Í allri fræðslu til handa foreldrum verður gengið út frá þeim áherslum sem unnið er eftir í leik- og grunnskóla og stuðst við ráðgjöf frá sama fagfólki og leiðbeinir starfsfólki skólanna.“ Stefnt er að því að foreldrar leikskólabarna fái reglulega fræðslu og ráðgjöf um málörvun og bernskulæsi og að foreldrum grunnskólabarna bjóðist fræðsla um hvernig þau geta stutt við lestrar- og læsisnám og segir Baldur að áætlun um fræðslu til handa foreldrum verði unnin í samráði við foreldrafélög skólanna.
Bókasafnið – hluti af daglegu lífi
Bókasafn Seltjarnarness er mikilvægur samstarfsaðili í verkefninu og ætlunin er að auka samstarf stofnana innan bæjarins í því skyni að styðja enn frekar við lestrarnám og stuðla að bættu læsi. Baldur segir markmiðið sé að auka heimsóknir barna og ungmenna á safnið, m.a. með reglubundnum og skipulögðum heimsóknum þeirra þangað. Með því verði stuðlað að auknum lestri barna og ungmenna almennt, ekki síst utan starfstíma skólanna. „Þá verður lögð áhersla á að kynna safnkostinn með þeim hætti að börn velji og kynni bækur fyrir börnum og unglingar að sama skapi fyrir jafnöldrum sínum. Auk þess verður áfram boðið upp á Sumarlestur en það er verkefni sem hefur það að markmiði að viðhalda og auka lestrarfærni barna yfir sumartímann.
Fagfólk og stuðningur
Skólaskrifstofan hefur með höndum að tryggja skilvirka stoðþjónustu til handa nemendum leik- og grunnskóla og aðgengi starfsfólks að kennslufræðilegri ráðgjöf. Það er einnig hlutverk skólaskrifstofu að styðja við símenntunaráætlanir skólanna, m.a. með því að skapa starfsfólki tækifæri til að afla sér fræðslu. Þá er hvort tveggja um að ræða að hópar starfsfólks geti sótt námskeið og að einstaklingar geti aukið við sérþekkingu sína, sem og að bjóða foreldrum og forráðamönnum leik- og grunnskólabarna, eins og áður er getið, upp á faglega fræðslu.