Miklar breytingar við Hverfisgötu
Samkvæmt nýju deiliskipulagi sem borgarráð hefur nýverið samþykkt breytist ásýnd Laugavegar lítið en talsverðar breytingar verða á byggðinni við Hverfisgötu sem samræmd verður byggingum í nágrenninu. Á reitnum mun rísa blönduð byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis með göngugötum sem tengja Laugaveg, Hverfisgötu og Klapparstíg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Brynjureitur markast af Laugavegi, Vatnsstíg, Hverfisgötu og Klapparstíg, en deiliskipulagi verður breytt á hluta reitsins sem tekur yfir Hverfisgötu 40 til 44, Klapparstíg 31 og Laugaveg 23, 27A og 27B. Allur reiturinn sem deiliskipulagið nær til er 7.436 fermetrar að stærð en breytingin á reitnum nær til 2.670 fermetra. Deiliskipulagstillagan á reitnum var auglýst frá 21. nóvember 2012 til og með 4. janúar 2013 og bárust tvö athugasemdabréf. Tillagan var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði 16. janúar 2013.
Samfellt yfirbragð
Á Brynjureit verður gert ráð fyrir nýbyggingum að Hverfisgötu 40, 42 og 44 og einnig að byggt verði á baklóðum. Yfirbragð reitsins við Hverfisgötu verður nokkuð samfellt og götumyndin styrkist mikið. Nýbyggingar við götuna eiga að taka mið af nærliggjandi húsum. Ásýnd Laugavegs breytist ekki, en húsið sem stendur við Laugaveg 23 verður gert upp en húsið var friðað með nýjum lögum um menningarminjar 1. janúar 2013. Í fyrri deiliskipulagstillögu var áformað að flytja það eða rífa.
Sex metra breið göngugata
Allt að sex metra breið göngugata verður fyrir miðju reitsins og tengir saman Laugaveg og Hverfisgötu. Aðkoma frá Laugavegi verður á milli Laugavegs 25 – 27 en tenging við Hverfisgötu verður í gegnum Hverfisgötu 42 með lyftu og stigakjarna. Einnig verður aðkoma að göngugötunni frá Klapparstíg, á milli Klapparstígs 29 og 31 og myndast þannig göngutengsl að Hljómalindarreit. Lágmarksbreidd þess stígs verður 3.5 metri. Er gert ráð fyrir að meðfram göngugötunni verði verslunar-, atvinnu- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð. Göngugötunni verður lokað á næturnar.