Nína Dögg útnefnd bæjarlistamaður

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri, Nína Dögg Filippusdóttir leikari og Sjöfn Þórðardóttir formaður menningarnefndar Seltjarnarnesbæjar.

Nína Dögg Filippusdóttir leikkona hefur verið útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness 2017. Formaður menningarnefndar, Sjöfn Þórðardóttir, afhenti Nínu Dögg viðurkenninguna og verðlaunaféð við athöfn í Bókasafni Seltjarnarness síðast liðinn föstudag.

„Nína Dögg hefur allt það til að bera sem prýtt getur bæjarlistamann, hún hefur ótvíræða hæfileika, listrænan metnað og sannfæringarkraft. Brennandi ástríða og einstök vandvirkni einkenna sérhvert verk sem hún tekur sér fyrir hendur. Hún er framúrskarandi listamaður sem fer alla leið,“ sagði Sjöfn m.a. í ræðu sinni við þetta tilefni. Í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ kemur fram að Nína Dögg hafi tilkynnt að hún vildi ánafna verðlaunafénu, einni milljón króna, til eflingar skapandi starfs ungmenna á Seltjarnarnesi með áherslu á sviðslistir. Þá kemur einnig fram að fyrirhugað er að bjóða eldri grunnskólanemum í bæjarfélaginu að vinna með fagfólki næsta haust en afrakstur starfseminnar verður fluttur á Menningarhátíð Seltjarnarness í október næstkomandi. Að auki ætlar Nína að leggja bæjarfélaginu lið í fjölbreyttu menningar- og listalífi þess á árinu.

You may also like...