Þúsundasti rafvirkinn útskrifaðist frá FB

Útskriftarhópur FB vorið 2019. Mynd Jóhannes Long.

Að lokinni vorönn útskrifaði Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 153 nemendur við hátíðlega athöfn í Silfurbergi Hörpu. Þar af útskrifuðust 83 nemendur með stúdentspróf, 12 sjúkraliðar, 20 húsasmiðir, 24 rafvirkjar, 11 nemendur af snyrtibraut og 10 nemendur af starfsbraut. Þá má geta þess að þúsundasti rafvirkinn úr FB var útskrifaður við athöfnina.

Dúx skólans var Guðmundur Freyr Gíslason, stúdent af náttúruvísindabraut með einkunnina 9,49. Fékk hann verðlaun fyrir bestan árangur í raungreinum, stærðfræði og spænsku, auk menntaverðlauna Háskóla Íslands.

Semídúx var Ásta Kristín Marteinsdóttir stúdent að loknu sjúkraliðanámi með einkunnina 9,43 og yngsti stúdentinn sem útskrifaðist var Erla María Theódórsdóttir af náttúruvísindabraut, en hún er aðeins 17 ára og lauk stúdentsprófi á tveimur árum. 

Dúx skólans var Guðmundur Freyr Gíslason stúdent af náttúruvísindabraut með einkunnina 9.49. Hann sópaði að sér flestum verðlaunum. Hann fékk verðlaun fyrir bestan árangur  í raungreinum, stærðfræði og spænsku. Þá hlaut hann einnig menntaverðlaun Háskóla Íslands. 
Semídúx var Ásta Kristín Marteinsdóttir stúdent að loknu sjúkraliðanámi með einkunnina 9.43. Hún hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur í ensku sem og viðurkenningu fyrir góðan námsárangur frá Soroptimistaklúbbi Hóla og Fella. 
Anita Rós Kingó Andersen hlaut viðurkenningu fyrir félagsstörf frá Rótarýklúbbi Breiðholts.  Á myndinni með Anítu er Áslaug Gísladóttir kennari (til vinstri) og til hægri við Anítu er Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari. 
Melkorka Rós Hjartardóttir nemandi við skólann söng við undirleik Fannars Pálssonar. 

You may also like...