Knatthús ÍR tekið í notkun

– skóflustunga að öðru íþróttahúsi og dans- og fimleikahús verður í Efra Breiðholti –

Stór dagur var í Breiðholti 5. september sl. Þá var nýtt knatthús tekið í notkun á athafnasvæði ÍR í Suður Mjódd og skóflustunga tekin að öðru íþróttahúsi á ÍR svæðinu. Þá tilkynnti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að dans- og fimleikahúsi hafi verið valinn staður í Efra Breiðholti. Á myndinni eru Ingigerður Guðmundsdóttir formaður ÍR og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að klippa á borða í tilefni þess að hið nýja hús var tekið í notkun.

Merkum áfanga í uppbyggingu á ÍR svæðinu í Suður Mjódd er náð. Áfanganum var fagnað laugardaginn 5. september sl. Þá var knatthús með frjálsíþróttaaðstöðu tekið í notkun og að auki tóku Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ingigerður H. Guðmundsdóttir formaður ÍR fyrstu skóflustunguna að öðru íþróttahúsi suðaustan við knatthúsið.

„Ég ólst upp við það að þurfa að sækja íþróttir í önnur hverfi því skortur var á aðstöðu í Árbænum. Uppbygging fjölbreyttra íþróttamannvirkja í Breiðholti hefur verið eitt af mínum hjartans málum,” segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í tilefni af hinu nýja knatthúsi. „Ég er stoltur af því að þetta glæsilega knatthús, með æfingaaðstöðu fyrir frjálsíþróttafólk er tilbúið og ekki síður að við erum að taka skóflustungu að íþróttahúsi sem verður fyrir handbolta, körfubolta og fleiri íþróttir. Á næsta ári tökum við nýjan frjálsíþróttavöll í Mjódd í gagnið og borgarráð hefur samþykkt að velja dans- og fimleikahúsi stað í Efra-Breiðholti. Framtíð íþrótta er björt í Breiðholti.“

Gleðidagur fyrir ÍR-inga og samfélagið í Breiðholti

„Þetta er mikill gleðidagur fyrir okkur ÍR-inga sem og samfélagið okkar hér í Breiðholti,“ segir Ingigerður H. Guðmundsdóttir, formaður ÍR. „Þau mannvirki sem rísa hér á svæðinu munu gjörbreyta starfi ÍR, gera deildum félagsins sem eru 10 talsins með um það bil 2600 iðkendur, kleift að vinna mun betur saman og færir samfélaginu í Breiðholti stað til að efla vegferð og starf íþróttahreyfingarinnar enn frekar.  Tilgangur félagsins er jú fyrst og fremst að ná til barna og unglinga, tryggja framúrskarandi þjálfun, góða aðstöðu til íþrótta­iðkunar og veita þeim tækifæri til að þróast sem íþróttafólk. Tryggja forvörn og reyna með öllum ráðum að halda börnum og unglingum áfram hjá okkur til að sjá þau vaxa og dafna sem sterka fullorðna einstaklinga“.  

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri með skófluna. Að baki hans er fjöldi ungmenna sem eiga eftir að njóta þeirra framkvæmda sem lokið er og standa fyrir dyrum á athafnasvæði ÍR.

Knatthús og frjálsar íþróttir

Í knatthúsinu nýja er annars vegar gervigrasvöllur á við hálfan knattspyrnuvöll og hins vegar æfingasvæði fyrir frjálsar íþróttir. Alls rúmir 4.200 fermetrar. Auk þess er tveggja hæða hliðarbygging meðfram suðurhlið salarins og er hún rúmir 1.100 fermetrar. Þar verður meðal annars búningsaðstaða og tæknirými. Skóflu­stunga að íþróttahúsinu sem nú er risið var tekin í febrúar 2019. Hönnun annaðist arkitekta­stofan Arkís og verktaki við uppbygg­ingu var Munck. Eftirlit var á hendi Hnit verkfræðistofu. Framkvæmdakostnaður er rúmur milljarður króna.

Handbolti, karfa og fleiri íþróttagreinar

Íþróttahúsið sem nú er búið að taka skóflustungu að verður byggt suðaustan við knatthúsið. Innangengt verður milli bygginganna. Í tengibyggingu er gert ráð fyrir búningsklefum og aðstöðu fyrir lyftingar. Nýja aðstaðan mun mæta kröfum til keppni í handbolta og körfubolta, auk þess sem svigrúm verður til iðkunar og keppni í fleiri greinum. Bygg­ingin verður á tveimur hæðum, nærri 4.200 fermetrar og þar af er íþrótta­salurinn nær 2.400 fermetrar. Í tveimur hliðarbyggingum hússins verður m.a. móttaka, salerni, áhaldageymslur, tækni­rými og aðstaða fyrir fjölmiðla. Áætlaður framkvæmdakostnaður er rúmar 1.150 milljónir.  Hönnun var á hendi ASK arkitekta og verktaki er Flotgólf ehf.

Framkvæmdir á lóð

Samhliða byggingarframkvæmdum verður unnið við lóðafrágang á ÍR svæðinu.  Aðallega verða þetta stórir grænir fletir sem ætlaðir eru til fótboltaiðkunar, en meira verður lagt í hönnun lóðar og frágang við aðalinngang og aðkomu.

Ingigerður Guðmundsdóttir formaður ÍR, Ómar Einarsson sviðsstjóri íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Í knatthúsinu nýja er annars vegar gervigrasvöllur á við hálfan knattspyrnuvöll og hins vegar æfingasvæði fyrir frjálsar íþróttir. 

You may also like...