Mörg vanrækt hús á miðborgarasvæðinu
– skapa hættu og eru lítt til þrifnaðar –
Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur telja að hætta stafi af tugum húsa á Miðborgarsvæðinu sem staðið hafa auð og vanrækt um lengri tíma – jafnvel svo áratugum skipti. Samtökin hafa skorða á byggingafulltrúa, heilbrigðiseftirlit, borgarfulltrúa og þingmenn að haga því þannig að húseigendur komist ekki upp með að láta hús sín standa auð og vanrækt um langa hríð. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem samtökin sendu fjölmiðlum fyrir nokkru.
Í yfirlýsingunni segir að í miðborg Reykjavíkur séu tugir húsa sem ekki eru nýtt og hafa sum þeirra staðið auð og vanrækt í áratugi. Ástand margra þessara húsa er með þeim hætti að af þeim stafar hætta, umhverfi þeirra subbulegt og óheilsusamlegt og ítrekað hafi kviknað í sumum þeirra sem sett hafi sett nærliggjandi byggð í hættu. Íbúasamtökin genda á að ástæður fyrir vanrækslu eigenda þessara húsa séu eflaust margvíslegar en núverandi ástand sé óþolandi fyrir nágranna þessara yfirgefnu húsa. Þau nýtist engan veginn til íbúðar eða fyrir atvinnustarfsemi. Sum þeirra séu aldursfriðuð. Stjórn Íbúasamtaka Miðborgarinnar hefur skorað á borgaryfirvöld og heilbrigðisyfirvöld að nota þau verkfæri sem embættin hafa til að koma í veg fyrir þetta háttalag og á borgarfulltrúa og á þingmenn Reykjavíkur norður að beita sér fyrir því að lög og reglugerðir verði gerðar svo skýrar að húseigendur komist ekki upp með að láta hús sín standa auð og vanrækt um langa hríð.
Þá láta samtökin einnig fylgja greinargerð með tilkynningunni, þar sem fram kemur að stjórn samtakanna hafi á undanförnum fundum rætt talsvert ástand nokkurra húsa í miðborginni „sem teljast verður ámælisvert vegna vanhirðu“.
Glæsihýsi óíbúðarhæft eftir tíð eigendaskipti
Í greinargerðinni er að finna fjölmörg dæmi um hús sem staðið hafa auð í langan tíma, þar á meðal eru timburhús að Þórsgötu 3 sem byggt var snemma á síðustu öld og steinbærinn að Klapparstíg 19 sem byggður var 1879 og er sá eini sinnar tegundar sem eftir er í Skuggahverfi.
Einnig er sérstaklega fjallað um Esjuberg, húsið að Þingholtsstræti 29a sem upphaflega hét Villa Frieda. Það var byggt 1916 og er friðað. Húsið sést á myndinni efst í fréttinni.
„Í þessu húsi var Borgarbókasafnið til húsa um árabil en þegar það flutti í Tryggvagötuna um aldamótin keypti ungur athafnamaður húsið til að stofna í því frumkvöðlasetur fyrir ungt fólk. Lítið varð úr þeim fyrirætlunum og keypti norskur málari húsið og bjó í því til 2008. Þá keypti athafnakona Esjuberg og hóf strax að byggja við það og breyta því að innan en lauk aldrei framkvæmdum og árið 2013 komst það í eigu fjárfestingarfélags. Síðan hefur harla lítið gerst og er þetta fallega og sögufræga hús nú óíbúðarhæft,“ segir í greinargerð samtakanna.
Þá er að finna í greinargerðinni hús við Veghúsastíg 1, Vatnsstíg 4, Laugaveg 33A, Óðinsgötu 14 a og b, Njarðargötu 35 auk fleiri húsa. Greinargerðina ásamt myndum af húsunum má nálgast í tengdum skjölum neðst í fréttinni.
„Stjórn íbúasamtakanna skorar á borgaryfirvöld að ganga í þetta mál sem allra fyrst og beita þeim úrræðum sem lög heimila til lausnar á þessu vandamáli. Ekki nóg með að ástand umræddra húsa sé til mikilla lýta heldur fylgir þeim hætta fyrir nágranna þar á meðal brunahætta,“ segja samtökin.