Endurbætur á gatnamótum Suðurstrandar og Nesvegs

Á kortinu má sjá yfir hvaða svæði endurbæturnar ná til.

Umfangsmiklar framkvæmdir eru hafnar við endurbætur gatnamótanna við Suðurströnd og Nesveg sem hafa verið í undirbúningi um þó nokkurt skeið. Framkvæmdin er tvíþætt: Annars vegar er um að ræða endurnýjun umferðarljósabúnaðar. Hins vegar endurbætur gatnamótanna með sérstöku tilliti til öryggis gangandi og hjólandi vegfarenda sem og fegrunar götunnar. 

Framkvæmdin felur í sér breikkun stíga og bætt aðgengi sjónskertra. Umferðareyjur verða endurgerðar, stígar breikkaðir og lýsing endurbætt. Umferðarljósin verða endurnýjuð með tilheyrandi jarðvinnu, skurð- og strenglögnum ásamt yfirborðsfrágangi. Seltjarnarnesbær og Vegagerðin eru verkkaupar að framkvæmdinni. VSÓ Ráðgjöf sá um alla hönnun en Loftorka sér um framkvæmdina. Áætluð verklok eru í desember 2021.

Á meðan á framkvæmdunum stendur verða settar upp greinargóðar merkingar og umferð gangandi og akandi verður lítið skert hins vegar hvetjum við alla til að fara varlega og sýna tillitsemi á verkstað. Foreldrar eru ennfremur hvattir til að upplýsa börn sín. Gangbrautarvarsla verður á morgnanna út allan verktímann.

You may also like...