Á fimmta tug bensínstöðva fara
– fjórar í Breiðholti
Bensínstöðvar við Stekkjarbakka, Skógarsel, Álfabakka og Suðurfell í Breiðholti eru á meðal þeirra sem eiga að víkja fyrir þjónustu og íbúðabyggð. Samningar hafa náðst við öll olíufélögin í Reykjavík um fækkun bensínstöðva í íbúðahverfum í samræmi við stefnur borgarinnar í loftslags og lýðheilsumálum. Með þessu er borgin að flýta fyrir umbreytingum í átt að þéttingu byggðar með aukinni áherslu á vistvænar samgöngur.
Á fimmta tug bensínstöðva eru í Reykjavík og þær búa yfir landrými sem gæti rúmað allt að 1400 íbúðir. Uppbygging hefst á næstu árum. Það er í forgangi að fækka stöðvum innan íbúðabyggðar og þar sem þær hafa áhrif á ásýnd og yfirbragð byggðar. Þá er horft til lóða þar sem eru sérstök tækifæri til að þétta byggð og efla þjónustu og almenningssamgöngur í hverfum.
Samninganefnd á vegum borgarinnar var falið að líta á þessu mál heildstætt og leiða viðræður við öll olíufélögin og rekstraraðila. Með þessi var talið að hægt væri að setja hagsmuni borgarinnar í forgang og flýta fyrir jákvæðri þróun byggðar.
Lóðaleigusamningar við olíufélög hafa gjarnan verið langtímasamningar, oft með flóknum uppkaupsákvæðum. Með því að semja við öll olíufélögin á svipuðum grundvelli var hægt að hraða umbreytingum en í stað bensínstöðva munu rísa íbúðabyggingar, með eða án atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Olíufélögin eru skuldbundin til að fjarlægja mannvirki og hreinsa jarðveg innan ákveðins tíma. Tillögur þeirra að nýbyggingum verða unnar í samráði við borgaryfirvöld og munu fara í skipulagsferli og grenndarkynningar. Ef ekki næst samkomulag um uppbyggingu verða samningar uppsegjanlegir.
Gert er ráð fyrir að nýting og skipulag lóða taki mið af þéttingaráformum Reykjavíkurborgar og nýting lóðar í samræmi við það. Lóðarhafar samþykkja að Félagsbústaðir hf. hafi kauprétt á 5% íbúða í húsum á lóðinni og kvöð er á lóðunum um að 20% íbúða skuli vera leiguíbúðir, sem auk Félagsbústaði verði stúdentaíbúðir, búseturéttaríbúðir eða íbúðir fyrir aldraða.