Íþróttakona og íþróttamaður KR
Íþróttakona og íþróttamaður KR voru valin á aðalfundi félagsins sem fram fór í félagsheimili KR í lok apríl.
Íþróttakona KR er Þórey Ísafold Magnúsdóttir sundkona. Þórey keppti á Norðurlandameistaramótinu í Svíþjóð og náði þar 2. sæti í 100m bringusundi. Setti íslandsmet í 100m flugsundi í flokki fatlaðra á bikarmóti SSÍ.
Íþróttamaður KR er Kennie Chopart knattspyrnumaður. Kennie hefur verið einn af máttarstólpum karlaliðs KR í fótbolta síðastliðin ár og var valinn besti leikmaður liðsins tímabilið 2021 þegar liðið endaði í 3. Sæti Pepsi Max deildarinnar og tryggði sér þar með Evrópusæti.