Útivistarsvæði á Austurheiðum

Kortið sýnir legu Austurheiða og afstöðu til byggðar í Reykjavík.

Fram undan eru framkvæmdir sem gera Austurheiðar borgar­inn­ar að betra og eftirsóknarverðara úti­vistarsvæði. Gönguleiðir verða merktar, stígar bættir og þeim fjölg­að og gerð leik- og dvalar­­svæði fyrir fólk og dýr. Fram­kvæmdir við fyrsta áfanga hefjast nú í sumar og er áætlaður kostnað­ur 100 milljónir króna. Útivistar­svæðið Austurheiðar er alls um 930 hektara svæði sem nær yfir Austurheiðarnar að mestu, Hólmsheiði, Grafarheiði og Reynisvatnsheiði. Innan svæðisins er Rauðavatn, Reynisvatn og Langavatn að hluta.

Verkefnið er byggt á sam­þykktu rammaskipulagi fyrir Austur­heiðar sem samþykkt var af skipulags- og samgönguráði 10. mars 2021. Þá eru Austurheiðar hluti af Græna treflinum sem er samheiti yfir skógrækt­ar- og útivistarsvæði á útmörkum sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðin með gerð rammaskipulags fyrir Austurheiðar eru margþætt og eiga að tryggja samræmingu landnotkunar innan svæðisins til að forðast hagsmuna­árekstra milli núverandi og framtíðar landnotkunar á svæðinu. Helstu markmið eru að skapa fjölbreytt og aðgengilegt útivistarsvæði fyrir alla aldurshópa og ólíka notenda­hópa eins og fyrir hestafólk, gönguskíði, fjallahjól, torfæruhjól, göngu, skokk, sveppamó, berjamó, ferðaþjónustu og fisflug. Markmið skipulagsins er að styrkja samspil og tengingu Austurleiða við aðliggjandi útivistarsvæði.

You may also like...