Hvað er Betra Breiðholt fyrir unglinga

Séð yfir Breiðholt. Bætt þjónusta við unglinga í Breiðholti. Ef vanda ber að fær hver unglingur úthlutað talsmanni á meðan á vinnslu máls stendur.

Betra Breiðholt fyrir unglinga er samstarfsverk­efni skóla- og frístundadeild­ar Breiðholts, Þjónustu­miðstöðvar Breiðholts og Keðjunnar sem miðar að því að mæta flóknum bráðavanda sem upp kemur meðal unglinga með snemmtæka íhlutun að leiðarljósi.

Verkefnið er unnið af hópi fólks skipuðu lykilstarfsfólki áðurnefndra stofnana auk hópstjóra. Hópnum er ætlað að setja fram einstaklingsmiðaða framkvæmdaráætlun er varðar ungling eða hóp unglinga þar sem hópfulltrúar bera ábyrgð á hlutverki sinnar stofnunar. Hópstjóri er tengiliður við samstarfsstofnanir. Hann vinn­ur í því umhverfi unglingsins sem nauðsynlegt er hverju sinni, hvort sem er á skólatíma, í frí­stundastarfi eða frítíma og vinn­ur náið með starfs­mönnum samstarfsstofnana. Hver unglingur fær úthlutað talsmanni á meðan á vinnslu máls stendur. Með verklaginu er heildarsýn og ábyrgð tryggð og stuðningur við hæfi veitt­ur. Með slíku verklagi er hægt að eyða hindrunum sem verið hafa til staðar og hægt að veita unglingum í vanda þjónustu án biðlista. Verkefnið er tilraunaverkefni til tveggja ára og verður árangur verk­efnins mældur í samvinnu við háskólasamfélagið.

Skólaárið 2020-2021 fékk verkefnið 4.000.000 króna í styrk.

You may also like...