Sjóvarnargarðurinn við Ánanaust endurbættur

Unnið við endurgerð sjóvarnargarðs við Eiðsgranda.

Á næstunni verður ráðist í endurbætur sjóvarnargarðsins með fram Ánanaustum í vesturbæ Reykjavíkur. Skipulagsfulltrúi hefur veitt Reykjavíkurborg framkvæmdaleyfi en framkvæmdir eiga að hefjast í júní.

Um er að ræða framhald fyrri áfanga en sjóvarnargarður við Eiðsgranda var endurbættur í fyrrahaust. Þær framkvæmdir sem nú verður ráðist í ná til sjóvarnargarðsins þar sem hann liggur meðfram skólpdælustöð og móttökustöð Sorpu allt að athafnasvæði Lýsis hf. Vegna sjógangs hefur göngustígurinn við Sorpu verið lokaður undanfarin misseri.

Útfærslan á endurgerð garðsins felst í upprifi á núverandi sjóvarnargarði. Hann verður rifinn upp og því grjóti sem er þegar í garðinum verður endurraðað. Auk þess verður flutt meira grjót að garðinum svo unnt verði að byggja hann upp til samræmis við verkteikningar. Upprifið efni verður flokkað og endurnýtt í bland við aðflutt efni frá nálægum lagerum.

You may also like...