Framkvæmdir hefjast við Vetrargarðinn

Skíðabrekka efst í Seljahverfinu þar sem vetrargarðurinn á að koma.

Brátt muni hefjast framkvæmdir við Vetrargarð sem byggja á efst í Seljahverfi í Breiðholti. Ætlunin er að þar verði hægt að skipuleggja alls kyns íþróttamót og aðra viðburði allan ársins hring. Þetta svæði hefur verið vinsælt hjá ungum sem öldnum á veturna.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur samþykkt umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds frá 8. júlí sl., um framkvæmdaleyfi. Leyfið felst í móttöku á jarðvegi og mótun skíðabrekkna og lands innan svæðisins. Jarðvegur verður fluttur á svæðið á tímabilinu september til ​október 2022 og til loka júní 2023. Vegagerðin setur það skilyrði að yfirborðið á því svæði þar sem nýr og óhulinn jarðvegur verði rykbundið.

You may also like...