Andrea Kolbeinsdóttir íþróttakona Reykjavíkur
Íþróttakona Reykjavíkur 2022 er Andrea Kolbeinsdóttir, frjálsíþróttakona í ÍR. Andrea er sigursælasti hlaupari kvenna á Íslandi 2022.
Andrea var í 21. sæti á Heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum í Tælandi. Andrea náði einnig 2. sæti í sterku utanvegahlaupi í Wildstrubel í Sviss á árinu. Andrea hefur sýnt það á árinu að hún getur sigrað hlaup allt frá 5 km upp í 55 km. Andrea er Íslandsmeistari í maraþoni, en hún sigraði Reykjavíkurmaraþonið á öðrum besta tíma kvenna frá upphafi. Þá er hún Íslandsmeistari í 5 km, 10 km og 8 km Víðavangshlaupi. Andrea sigraði í Laugavegshlaupinu á nýju brautarmeti kvenna, ásamt því að sigra öll stærstu hlaupin hér á landi eins og Tindahlaupið, Fimmvörðuhálshlaupið, Súlur Vertical, Snæfellsjökulshlaupið og fleira.