Andrea Kolbeinsdóttir íþróttakona Reykjavíkur

Andrea Kolbeinsdóttir, frjálsíþróttakona í ÍR með viðurkenninguna.

Íþróttakona Reykjavíkur 2022 er Andrea Kolbeinsdóttir, frjálsíþrótta­kona í ÍR. Andrea er sigursælasti hlaupari kvenna á Íslandi 2022. 

Andrea var í 21. sæti á Heimsmeistaramótinu í utanvega­hlaupum í Tælandi. Andrea náði einnig 2. sæti í sterku utanvegahlaupi í Wildstrubel í Sviss á árinu. Andrea hefur sýnt það á árinu að hún getur sigrað hlaup allt frá 5 km upp í 55 km. Andrea er  Íslandsmeistari í maraþoni, en hún sigraði Reykja­víkurmaraþonið á öðrum besta tíma kvenna frá upphafi. Þá er hún Íslandsmeistari í 5 km, 10 km og 8 km Víðavangshlaupi. Andrea sigraði í Laugavegshlaupinu á nýju brautar­meti kvenna, ásamt því að sigra öll stærstu hlaupin hér á landi eins og Tindahlaupið, Fimmvörðuháls­hlaupið, Súlur Vertical, Snæfells­jökulshlaupið og fleira.

You may also like...