Skemmtileg Safnanótt á bókasafninu

Mikið líf og fjör var í bókasafninu þegar að Safnanóttin var haldin hátíðleg föstudaginn 3. febrúar sl. Fólk byrjaði að streyma að strax um klukkan fjögur enda var boðið upp á fjölbreytta og fjölskylduvæna dagskrá til átta um kvöldið. 

Þar voru leikir, listaverk, getraunir, fróðleikur, föndur, bingó, blöðrur, tónlistaratriði, veitingar og vinningar svo enginn varð svangur og allir fundu eitthvað við sitt hæfi að gera. Stemningin var enda góð og gaman hversu margir tóku þátt á Safnanóttinni eins og sjá má á myndum frá kvöldinu góða á bókasafni Seltjarnarness.

You may also like...