Mikil vinna framundan vegna viðhalds
Svo bregðast krosstré sem önnur tré segir gamalt máltæki. Eitt virðulegasta skólahús borgarinnar hefur staðið á Melunum í áratugi. Á meðan þurft hefur að loka yngri skóla- og leikskólahúsum vegna mygluvanda hefur þetta virðulega hús staðið hnarreist á lóðinni við Hagamel 1. En nú hefur orðið breyting á. Mygla hefur greinst á nokkrum stöðum í eldra húsnæði skólans. Þetta kemur fram í tölvupósti sem nýverið var sendur á foreldra og aðstandendur barna í Melaskóla.
Í tölvupósti sem Harpa Reynisdóttir skólastjóri Melaskóla hefur sent foreldrum og aðstandendum barna kemur fram að sérfræðingar hjá verkfræðistofunni Eflu hafi verið að skoða ástand skólans í vetur, meðal annars með rakamælingum og sýnatökum. Niðurstöðurnar hafi verið kynntar skólastjórnendum. Fyrir liggi að mygla greinist á nokkrum stöðum í eldra húsinu. Upprunalegi gólfdúkurinn sé þó til varnar hann sé einstaklega þykkur. Farið verður í minni háttar aðgerðir og tilfæringar strax en ekki er talið að flytja þurfi að starfsemina úr húsi. Ráðast á í umfangsmeiri framkvæmdir á komandi sumri. Fimm skólar hafa verið lokaðir, í heild eða að hluta til. Hagaskóli, Laugarnesskóli, Sunnuás, Grandaborg og Nóaborg.
Þrjár leiðir til úrbóta
Verkfræðistofan Efla hefur bent á þrjár leiðir til úrbóta. Í fyrsta lagi er um að ræða allsherjar endurnýjun á bæði ytra og innra byrði hússins. Einangra húsið að utan og koma fyrir vatnsvarnar lagi í formi gufuopsins dúk sem þéttur er við glugga. Hreinsa múr og öll einangrunarefni innan af veggjum sótthreinsa burðarveggi og múra. Til að hægt sé að fara þessa leið sem sem talin er besta leiðin út frá byggingaeðlisfræði sjónarmiði og varðveislu hússins þurfi að aflétta friðunar ákvæði sem er á ytri hjúp hússins. Önnur leið sem Efla leggur til er að hreinsa múr og öll einangrunarefni innan af veggjum sótthreinsa burðarveggi. Endurnýja steiningu hússins og glugga. Endurbyggja innra byrði á sama máta og upprunalegur frágangur var eða með sama einangrunargildi til að tryggja að burðarvirki haldist heitt og þannig fyrirbyggja frostskemmdir í steypu. Kostur við þessa leið er að hún breytir ekki útliti hússins en ókostur að þessar viðgerðir duga tæpast lengur en um áratug. Í þriðja lagi er lagt til að halda áfram staðbundnum aðgerðum skipta einungis um þá glugga sem leka og reyna inndælingar. Fara í stað bundnar aðgerðir innan dyra meðfram útveggjum, fjarlægja dúka og ílögn frá veggjum velja önnur gólfefni en dúka næst útveggjum. Þessi leið er ódýr en verkfræðistofan bendir á að þarna sé um skammtímalausn að ræða og mikið viðhald verði á húsinu innan fárra ára. Hvaða leið sem farin verður er ljóst að mikið verk er framundan vegna viðhalds Melsskóla.