Nýr verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs

Ása Kristín Einarsdóttir.

Ása Kristín Einarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri frí­stunda- og forvarnastarfs hjá Seltjarnarnesbæ. Um er að ræða nýtt starf hjá bænum og snýr að forvarnarstarfi fyrir alla aldurshópa sem og þátttöku í starfsemi félagsmiðstöðvar og ungmennahúss.

Ása Kristín var valin úr hópi öflugra umsækjenda en hún er menntuð í tómstunda- og félagsmálafræðum og hefur starfað við frístunda- og félagsmiðstöðvar í meira en áratug. Meðal annars veitti hún félagsmiðstöðinni Tjörninni forstöðu árin 2016 til 2019, starfaði sem fjölmenningar­fulltrúi frí­stundamála hjá frístunda­miðstöðinni Kringlumýri auk þess að hafa veitt Tónabæ forstöðu frá árinu 2020.

Verkefnastjóri frístunda- og forvarnarstarfs er nýtt starf hjá Seltjarnarnesbæ, en helstu verkefni þess eru skipulagning og eftirfylgni við forvarnarstarf fyrir alla aldurs­hópa í sveitarfélaginu og þátttaka í starfsemi félagsmiðstöðvar og ungmennahúss. Forvarnafræðsla í samstarfi við hagsmunaaðila um forvarnarstarf í sveitar­félaginu, s.s. skóla, félagsmiðstöð, frístundaheimili, foreldrafélög, íþróttafélag og fjölskylduþjónustu heyrir til starfsins, sem er mjög fjölþætt. Seltjarnarnesbær býður Ásu Kristínu velkomna til starfa.

You may also like...