Skóflustunga í lok árs
— Nýtt fjölnota íþróttahús KR —
Áætlað er að fyrsta skóflustungan að nýju fjölnota íþróttahúsi KR verði tekin í lok þessa árs. Byggingarnefnd hefur verið sett á laggirnar vegna uppbyggingar á húsinu á lóð KR í Vesturbæ Reykjavíkur.
Fjölnota íþróttahús er fyrsti áfangi í framtíðaruppbyggingu fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf í Vesturbæ. Þarfagreining vegna verkefnisins unnin út frá þörfum allra deilda félagsins. Samhliða þessu vinnur byggingarnefnd á vegum KR að heildaruppbyggingu svæðis. Í húsinu verður íþróttasalur, hálfur knattspyrnuvöllur með tveggja hæða hliðarbyggingu meðfram langhlið salar. Í hliðarbyggingu er gert ráð fyrir búningsaðstöðu, taekwondo-íþróttasal, fjölnota íþróttasal sem þjónustar deildir félagsins svo sem glímu, pílu og fleiri, skáksal, aðstöðu fyrir tónmenntaskóla með sex til átta skólastofum og önnur stoðrými.
Hið fjölnota íþróttahús á að rísa á miðju KR-svæðinu og verður hluti af miklum uppbyggingaráformum þar. Þau fela meðal annars í sér byggingu 100 íbúða sem standa munu straum af kostnaði að hluta. Íþróttahúsinu svipar nokkuð til fjölnota húss sem byggt var nýverið á ÍR-svæðinu í Mjódd. ÍR húsið er 5.465 fermetrar en hús KR-inga verður öllu stærra, eða 6.772 fermetrar. Heildarkostnaður við bygginguna er áætlaður um 2.430 milljónir króna á verðlagi í febrúar 2023, að því er kemur fram í gögnum sem lögð voru fram í borgarráði.
Fyrirhugað íþróttahús mun nýtast eftirfarandi deildum félagsins með beinum hætti: Knattspyrnudeild, glímudeild, skákdeild, píludeild taekwondodeild, rafíþróttadeild, starfsemi fyrir eldri borgarar, hlaupahóp og tónmenntaskóla. Húsið mun einnig nýtist fleiri deildum með óbeinum hætti. Má þar nefna: körfuknattleiksdeild, handboltadeild, borðtennisdeild, skíðadeild, frjálsíþróttadeild, sunddeild, badmintondeild og keiludeild.