Kristjana nýr skólastjóri grunnskólans
Kristjana Hrafnsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness frá 1. ágúst 2022. Kristjana hefur starfað við skólann sl. 21 ár og þar af sem aðstoðarskólastjóri frá árinu 2018. Hún á stóran þátt í uppbyggingu skólastarfs og núverandi stöðu skólans.
Kristjana hefur M.Ed.-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði auk þess að hafa viðbótardiplómagráðu í stjórnunarfræði menntastofnana, með áherslu á starfsþróun, skólaþróun og lærdómssamfélög undir faglegri forystu skólastjóra. Í hlutverki aðstoðarskólastjóra skólans hefur Kristjana öðlast góða innsýn í skólastarfið, uppbyggingu þess og skipulag. Hún hefur komið að ákvarðanatökum varðandi flesta þætti starfsins og þekkir vel til starfshátta. Þá hefur hún haft tengsl við samstarfsaðila skólans í áraraðir.