Forval um hönnun Fossvogsbrúar

Tölvugerð mynd sem sýnir hvernig umrædd Fossvogsbrú gæti litið út. Hönnun brúarinnar er þó ekki hafin. 

Reykjavíkurborg, Kópavogsbær og Vegagerðin hafa auglýst eftir ráðgjöfum til að taka þátt í samkeppni um hönnun brúar yfir Fossvog. Með því er verið að stíga fyrsta skrefið varðandi hönnun brúar, sem verið hefur til umfjöllunar í allmörg ár. 

Gert er ráð fyrir um 270 metra langri brú yfir Fossvog. Frá norðurenda Bakkabrautar á Kársnesi að flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar vestan Nauthólsvíkur.

Markmiðið er að bæta samgöngutengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs og styðja við vistvæna samgöngukosti. Brúin verður fyrir umferð gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur. Um er að ræða opið forval þar sem valin verða fimm hönnunar teymi til að taka þátt í samkeppni á grundvelli hæfni og fyrri reynslu. Tilboðum átti að skila fyrir kl. 12.00 föstudaginn 20. desember 2019.

You may also like...